Lífið

Adele í aðdáendahóp Nágranna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Adele í Ramsay-götu.
Adele í Ramsay-götu. Mynd/Adele
Sönkonan Adele er þessa dagana á tónleikaferðalagi um Ástralíu. Það fór þó ekki allur tíminn í að halda tónleika og skrapp söngkonan fræga á tökustað sjónvarpsþáttarins ofurvinsæla Nágranna.

Nágrannar er teknir upp í Melbourne og heimsótti Adele götuna frægu sem leikur hlutverk Ramsay-götu í þáttunum.

Deildi hún mynd af ferðalagi sínu á Instagram og bætti við textanum af upphafslagi þáttanna. Líklega ólst Adele upp við að horfa á þættina frægu sem eru geysilega vinsælir í heimalandi Adele, Bretlandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×