Tónlist

Adele gefur frá sér nýtt myndband: Fær sextán milljarða í vasann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adele á einhvern pening.
Adele á einhvern pening. vísir
Söngkonan Adele mun skrifa undir nýjan plötusamning við Sony Music sem gefur henni níutíu milljónir punda í vasann eða því sem samsvarar 16 milljörðum íslenskra króna.

Þetta er stærsti plötusamning bresks listamanns í sögunni en Robbie Williams fékk plötusamning upp á 80 milljónir punda á sínum tíma.

Í gær gaf Adele út tónlistarmyndband við lagið Send My Love (To Your New Lover) og eins og vanalega fór netið á hliðina. Þegar þessi frétt er skrifuð hefur yfir ein milljón manns horft á myndbandið.

Í október gaf Adele út myndband við lagið Hello og núna hefur verið horft á það myndband yfir milljarð sinnum, sem er með ólíkindum.

Hér að neðan á sjá myndbandið nýja.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×