Aðeins stærðfræðin getur tekið Pepsi-deildarsætið af Leiknismönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2014 20:22 Vísir/Arnþór
Leiknismenn eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni í fótbolta á næsta tímabili eftir markalaust jafntefli á móti Víkingi í Ólafsvík í kvöld. Leiknir hefur aldrei áður spilað í efstu deild karla. Leiknir er með níu stiga forskot á Víkinga og miklu betri markatölu þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum. Leiknir er með 19 mörk í plús en Víkingar eru aðeins með 3 mörk í plús. Ekkert annað lið á möguleika á að senda Leiknisliðið niður í 3. sætið. Selfyssingar unnu gríðarlega mikilvægan 3-1 sigur á KV í sex stiga leik í fallbaráttunni á Selfossi. KV er þar með sex stigum frá öruggu sæti þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum. Selfoss fór langt með að tryggja sér sæti sitt enda nú sjö stigum á undan KV. Ragnar Þór Gunnarsson, Luka Jagacic og Andri Björn Sigurðsson skoruðu mörk Selfossliðsins sem komu öll á síðustu fimmtán mínútum leiksins. KV minnkaði muninn í lokin en er í mjög slæmum málum eftir fimmta tapið í síðustu sex leikjum. KA og Haukar gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik kvöldsins þar sem KA-menn töldu sig hafa skorað fullkomlega löglegt sigurmark. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá vefsíðunni úrslit.net.Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í kvöld:KA - Haukar 0-0Víkingur Ó. - Leiknir R. 0-0Selfoss - KV 3-1 1-0 Ragnar Þór Gunnarsson (76.), 2-0 Luka Jagacic (87.), 3-0 Andri Björn Sigurðsson (89.), 3-1 Einar Már Þórisson (90.).
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Handbolti „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Fleiri fréttir Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Þróttarar kjósa um nýtt merki Spáin segir að Valur verji titilinn Amanda verður best og FH-ingar grófastir Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn afturreka úr Árbænum Svona var kynningarfundur Bestu deildar kvenna Niðurstöðu að vænta í máli Arnars og KA eftir mánuð Besta-spáin 2024: Blóðtakan of mikil Heimir Guðjóns og Óskar Hrafn hafa báðir látið Hallgrím heyra það „Vorum að spila á móti besta liði landsins“ Uppgjör og viðtal: Valur - Víkingur 1-1 | Bikarmeistar Víkings Meistarar meistaranna Þór/KA fær Bryndísi á láni frá Íslandsmeisturum Vals Besta byrjun Íslandsmeistara í átta ár Biðin eftir fyrsta leiknum á grasi lengist Óskar Örn jafnaði met Gunnleifs Pressa á Hallgrími: „Áttu að þurfa að segja þetta við leikmenn?“ Gummi Ben: Hann fær boltann í lærið Jóhann Ingi Vill vera jafn iðinn við kolann og Olga Færseth Sjáðu sigurmark Víkinga og mark Framara sem var dæmt af „Djöfull hlýtur að vera óþolandi að spila á móti þessum gaur“ „Allir sem eru búnir að sjá þetta aftur segja mér hvernig þetta hefði átt að vera“ Uppgjörið og viðtal: Fram - Víkingur 0-1 | Íslandsmeistararnir áfram með fullt hús Hefur varið helming vítanna sem hann hefur reynt við í Bestu Arnar hefur ekki tapað fyrir Rúnari í meira en þrjú ár Valur og FH mætast í bikarnum en meistararnir fá heimsókn úr Garði KR-ingar meira en tíu klukkutímum fljótari í sjö mörkin í ár Allir vinir í skóginum: Sameiginlegt Fan Zone fyrir fyrsta leik Nadíu með Val Sjáðu þrennu Viktors og vítavörsluna sem bjargaði Val Sjá meira