Fótbolti

Aðeins sjö prósent líkur á því að Barcelona komist áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi þarf að töfra eitthvað svakalegt fram í seinni leiknum.
Lionel Messi þarf að töfra eitthvað svakalegt fram í seinni leiknum. Vísir/Getty
Fyrri viðureignum sextán liða úrslita Meistaradeildarinnar er nú lokið og eftir mikla markaveislu í flestum leikjanna er ljóst að liðin sextán standa misvel fyrir seinni leikinn.

Tölfræðisíðan FiveThirtyEight reiknar alltaf út allskyns sigurlíkur og möguleika íþróttaliða og nú er hægt að skoða hjá þeim líkurnar á því að liðin komist í átta liða úrslitin.

Það hefðu örugglega fáir trúað því fyrir þessa leiki að fyrir seinni leikinn væru aðeins sjö prósent líkur á því að Barcelona kæmist áfram þrátt fyrir að sá leikur væri á Nývangi.

Paris Saint-Germain vann hinsvegar 4-0 stórsigur á Barcelona í fyrri leiknum og er því í frábærum málum þegar liðið mætir á Nývangi 8. mars næstkomandi.

Það eru bara þrjú lið sem eru í verri stöðu en Barcelona og það eru Porto (1 prósent líkur á sæti í 8 liða úrslitum), Arsenal (2 prósent) og Bayer Leverkusen (2 prósent). Arsenal spilaði sig náttúrulega út úr keppninni með því að tapa 5-1 á útivelli á móti Bayern München.

Möguleikar Leicester City hækkuðu aðeins þegar Jamie Vardy skoraði mikilvægt útivallarmark undir lokin á móti Sevilla.

Manchester City fékk á sig þrjú mörk á heimavelli en er samt í fínum málum þökk sé góðum sóknarleik en liðið skoraði fimm mörk hjá Mónakó og það eru 84 prósent líkur á því að City-liðið komist í átta liða úrslitin.

Það er ennfremur tólf prósent líkur á því að Manchester City vinni Meistaradeildina en aðeins þrjú lið eru ofar eða Bayern München (22 prósent), Juventus (17 prósent) og Real Madrid (16 prósent).



Liðin sem eru í bestu málunum

Juventus 99 prósent

Bayern München 98 prósent

Atletico Madrid 98 prósent

Paris Saint-Germain 93 prósent

Real Madrid 84 prósent

Manchester Cuty 84 prósent

Sevilla 75 prósent

Dormund 50 prósent

Bendica 50 prósent

Liðin sem eru í verstu málunum

Porto 1 prósent

Arsenal 2 prósent

Bayer Leverkusen 2 prósent

Barcelona 7 prósent

Napoli 16 prósent

Mónakó 16 prósent

Leicester City 25 prósent

Það er hægt skoða meira af sigurlíkum liðanna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×