Lífið

Sjö konur á meðal 50 launahæstu tónlistarmannanna

Sylvía Hall skrifar
Lady Gaga skipar sjötta sæti listans.
Lady Gaga skipar sjötta sæti listans. Vísir/Getty
Billboard hefur birt lista yfir fimmtíu launahæstu tónlistarmennina í ár. Sjö konur eru á meðal þeirra og aðeins ein þeirra í efstu tíu sætunum.

Lady Gaga er fremst meðal jafningja í 6. sæti listans, en sú næsta kemur tuttugu sætum neðar og það er Céline Dion í 26. sæti. Næst koma þær Britney SpearsFaith HillAriana GrandeJanet Jackson og Taylor Swift

Listinn þykir sýna fram á þann launamun sem viðgengst enn í skemmtanabransanum, en í síðasta mánuði vakti hljómsveitin HAIM athygli eftir að þær ráku umboðsmann sinn í kjölfar þess að þær voru bókaðar á tónlistarhátíð, þar sem karlmaður fékk tífalt meira borgað en þær fyrir hátíðina.

Tónlistarhátíðin Coachella hefur einnig verið gagnrýnd fyrir skort á konum sem koma fram á hátíðinni, en árið 2017 var meirihluti þeirra sem kom fram á hátíðinni karlkyns. 

Listann í heild sinni má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×