Lífið

Aðeins örfáir vinir vissu af veikindum Bowie

Bjarki Ármannsson skrifar
Tónlistarmanninum David Bowie tókst að halda því leyndu fyrir öllum nema örfáum nánum vinum að hann væri illa haldinn af lifrarkrabbameini.
Tónlistarmanninum David Bowie tókst að halda því leyndu fyrir öllum nema örfáum nánum vinum að hann væri illa haldinn af lifrarkrabbameini. Vísir/Getty
Tónlistarmanninum David Bowie tókst að halda því leyndu fyrir öllum nema örfáum nánum vinum að hann væri illa haldinn af lifrarkrabbameini. Þetta kemur fram í samantekt breska blaðsins The Independent. Bowie lést í nótt eftir að hafa glímt við sjúkdóminn í um eitt og hálft ár.

Söngvarinn vann að söngleiknum Lazarus á síðasta ári með belgíska leikstjóranum Ivo van Hove, sem segist hafa vitað að endalokin væru í nánd. Bowie hafi greint honum frá veikindunum til þess að útskýra hvers vegna hann gæti ekki alltaf mætt á æfingar.

„Bowie hélt áfram að skrifa á banalegunni,“ segir van Hove. „Hann barst eins og ljón og hélt áfram að vinna eins og ljón í gegnum þetta allt saman. Ég virði það ótrúlega mikið.“

Sjá einnig: Hvað stendur þú í samanburði við David Bowie?

Bowie kom síðast fram opinberlega þann 12. desember í tengslum við Lazarus-sýninguna. Hann hitti þá aðdáendur við leikhús í New York og skrifaði eiginhandaráritanir með bros á vör.

Síðasta platan „kveðjugjöf“ söngvarans

Í kjölfar tíðinda dagsins hafa margir kembt texta á síðustu plötu kappans, Darkstar sem kom út síðastliðinn föstudag, í leit að vísbendingum um það hvort Bowie hafi vitað að hann ætti ekki mikið eftir.

Lagið Lazarus er talið vísa í veikindi söngvarans, en þar syngur hann meðal annars að hann sé í himnaríki og að hann hafi ör sem enginn sjái.

Sjá einnig: Þegar Bowie kom til landsins

Brian Eno og Bowie á góðri stundu á tíunda áratugnum.Vísir/Getty
Upptökustjóri plötunnar, Tony Visconti, segist telja að Bowie hafi vitað í um það bil ár að krabbameinið hans væri ólæknandi og lýsir plötunni sem „kveðjugjöf“ Bowie.

Tónlistarmaðurinn og goðsagnakenndi upptökustjórinn Brian Eno, sem vann með Bowie að tímamótaplötunum Low og Heroes, segir að Bowie hafi sent honum skemmtilegan tölvupóst í síðustu viku. Hann skilji nú að Bowie hafi verið að kveðja.

„Pósturinn var fyndinn eins og alltaf,“ segir Eno. „Í þetta sinn kvaddi hann með orðunum: „Þakka þér fyrir okkar góðu stundir saman, Brian. Þær munu aldrei spillast.““


Tengdar fréttir

David Bowie látinn

Einn þekktasti rokkari tónlistarsögunnar er látinn, 69 ára að aldri.

Stjörnurnar minnast David Bowie

Söngvarinn David Bowie er látinn eftir baráttu við krabbamein. Hann var 69 ára að aldri. Þetta staðfestir talsmaður hans í samtali við fjölmiðilinn The Hollywood Reporter.

Rothögg að spyrja bana Bowies

Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður er vart mönnum sinnandi í dag – en hann er einn helsti Bowie-aðdáandi sem fyrir finnst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×