Innlent

Aðeins ein höfuðborg í allri Evrópu sem státar af hvítum jólum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá tendrun Oslóartrésins á fyrsta í aðventu.
Frá tendrun Oslóartrésins á fyrsta í aðventu. Vísir/Ernir
Jólin eru rauð í Danmörku, vot og mild þriðja árið í röð en Danir velta sér upp úr jólaveðrinu á heimasíðu TV2. Þeir eru hins vegar langt í frá einu Evrópubúarnir sem sjá ekki snjókorn falla þessi jólin en samkvæmt úttektinni eru rauð jól í Osló, Stokkhólmi og Helsinki, höfuðborgum hinna Norðurlandanna.

Meira að segja í Moskvu er boðið upp á sól og fimm stiga hita.

„Í rauninni er aðeins ein höfuðborg í Evrópu sem getur montað sig af snjó á jörðu á aðfangadag í ár, það er Reykjavík á Íslandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×