Lífið

Aðeins 13 þættir eftir af Game of Thrones

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Næturkóngurinn verður líklegast helsta ógnin í komandi seríum.
Næturkóngurinn verður líklegast helsta ógnin í komandi seríum. Vísir/HBO
Aðdáendur Game of Thrones eru líklegast ennþá að jafna sig eftir svakalegan lokaþátt sjöttu seríu. Þar urðu ýmsar breytingar á valdataflinu í Westeros svo ekki sé meira sagt.

Nú hafa framleiðendur þáttanna staðfest að aðeins tvær seríur séu eftir. Ekki nóg með það heldur verða þessar seríur í styttra laginu því aðeins 13 þættir eru eftir. Næsta sería verður aðeins 7 þættir en nú hefur fengist staðfest að lokaserían verður aðeins sex þættir.

Meðframleiðendur þáttanna og handritshöfundar David Benioff og D. B. Weiss hafa nú staðfest að heildarserían um Game of Thrones verði aðeins um 73 klukkustunda löng. Nú þegar hafa þættirnir 60 sem búið er að framleiða flestir verið um klukkustunda langir sem þýðir að aðeins 13 klukkustundir eru eftir af sjónvarpssögunni.

Þættirnir núna mjög ólíkir bókunum

Miðað við að höfundur bókanna George R. R. Martin á enn eftir að gefa út tvær risastórar bækur í seríunni er því orðið ljóst að margt sem gerist í bókunum verður ekki með í þáttunum. Þau þáttaskil urðu við gerð sjöttu seríu að þættirnir fóru lengra en söguþráður bókanna. Framleiðendur þáttanna hafa sagt að þeir séu að færast að sömu lokaniðurstöðu og Martin með bókunum en að þeir fari aðra leið.

Martin gaf síðast út bókina A Dance with Dragons sem var sú fimmta í Song of Ice and Fire röðinni sem Game of Thrones þættirnir eru byggðir á. Hann hefur átt í erfiðleikum með að klára næstu bók The Winds of Winter sem er þó nálægt því að vera fullkláruð. Breytingarnar í þáttunum hingað til frá söguþræði bókana hefur verið nokkur auk þess sem þættirnir eru komnir lengra í sögunni.

Til að mynda er Jon Snow ennþá dauður í bókunum, Sansa Stark giftist aldrei illmenninu Ramsay Bolton og Tyrion Lannister hefur ekki enn hitt Daenerys Targaryen svo fátt eitt sé nefnt.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×