Lífið

Aðdáunarvert dómínómyndband til að heiðra Ísland

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Notandinn Annodominovideos á nóg af dómínó kubbum og frítíma.
Notandinn Annodominovideos á nóg af dómínó kubbum og frítíma. myndir/youtube
Kannast þú við Youtube-notandann Annodominiovideos? Ekki við heldur þar til í dag. Hann virðist hafa heimsótt Ísland og orðið ástfanginn af landinu eða í það minnsta nægilega hrifinn til að búa til óð til landsins með dómínókubbum. 

Meðal þess sem bregður fyrir í myndbandinu eru galdrastafurinn ægishjálmur, Hallgrímskirkja, íslenski hesturinn og að sjálfsögðu uppáhald okkar allra, Eyjafjallajökull.



Sagt var frá myndbandinu fyrst á Nútímanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×