Bílar

Aðdáendur Renault Alpine geta glaðst á ný

Finnur Thorlacius skrifar
Gamall og nýr Renault Alpine. Sá nýi kemur á markað seinna á árinu.
Gamall og nýr Renault Alpine. Sá nýi kemur á markað seinna á árinu.
Aðdáendur hins goðsagnakennda sportbíls Renault Alpine geta nú glaðst á ný því nýr og glæsilegur sportbíll frá framleiðandanum lítur dagsins ljós síðar á þessu ári. Renault hefur ákveðið að fyrstu 1955 bílarnir verði í sérstakri númeraðri viðhafnarútgáfu til minningar um frumkvöðul Alpine, Jean Rédélé, sem stofnaði fyrirtækið samnefnt ár.

Nýr Alpine er sannur sportbíll í anda helstu keppinauta sinna og fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 4,5 sekúndum. Afhending fyrstu bílanna hefst síðar á þessu ári, en einungis íbúar þrettán Evrópuríkja auk Japans gefst kostur á að fyrirfram panta eintak á netinu þar sem reiða þarf fram tvö þúsund evrur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×