Innlent

Aðalvarðstjóri lögreglu: Sterkur grunur að skórnir séu af Birnu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Enn fjölgar í leitarliði sem tekur þátt í umfangsmikli aðgerð lögreglu og björgunarsveita við Hafnarfjarðarhöfn eftir að skópar, sem talið er geta verið af Birnu Brjánsdóttur, fannst við höfnina um ellefu leytið í kvöld.

Ítarlegt uppgjör á atburðum næturinnar eftir að skórnir fundust má lesa hér.

Ágúst Svansson aðalvarðstjóri, sem sérhæfir sig í leitaraðgerðum, segir að skóparið sér hugsanlega frá henni. Það er svart og af tegundinni Dr. Martens, sömu tegund og Birna klæddist þegar hún hvarf sporlaust á sjötta tímanum á laugardagsmorgun.

Kallað í allt sem hægt er að kalla í

„Þar sem við höfum sterkan grun þá þorðum við ekki öðru en að kalla til allt sem við getum kallað til,“ segir Ágúst í samtali við fréttastofu.

Björgunarsveitir, lögreglumenn og sérsveitarmenn eru á svæðinu en notast er við tvo dróna, gúmmíbáta og sporhund við leitina. 

Á blaðamannafundi lögreglu í dag kom fram að síðasta merki af iPhone síma Birnu fannst við gömlu slökkvistöðina í Hafnarfirði klukkan 5:50 umræddan laugardagsmorgun. Skömmu síðar var slökkt á símanum en flest bendir til þess að hann hafi verið á ferð í bíl.

Fullmikil tilviljun

Nú finnast svo skór, sömuleiðis í Hafnarfirði, af sömu tegund og Birna á. Ágúst segir að þetta virki vissulega sem fullmikil tilviljun.

„Jú, maður hefur ónot af þessu. Þess vegna erum við með þessa aðgerð hérna í gangi,“ segir Ágúst. Á fjórða tímanum höfðu engar frekari vísbendingar fundist. 

„Við höfum ekkert fundið nema skórnir eru komnir fram. Nú erum við að gera skipulag. Það eru komnir nokkrir hópar frá Landsbjörgu og erum enn að bæta í.“

Viðtalið við Ágúst má sjá í spilaranum að ofan. Að neðan má svo sjá myndir Vilhelms Gunnarssonar frá leitaraðgerðum í nótt.


Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson
Vilhelm Gunnarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×