Viðskipti erlent

Aðalhagfræðingur Deutsche: Evrópskir bankar þurfa 150 milljarða evra endurfjármögnun

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Viðmælandi Welt am Sonntag starfar sem aðalhagfræðingur Deutsche Bank.
Viðmælandi Welt am Sonntag starfar sem aðalhagfræðingur Deutsche Bank. vísir/epa
Evrópska banka bráðvantar 150 milljarða evra til að endurfjármagna banka í álfunni sem standa illa. Þetta segir David Folkerts-Landau, aðalhagfræðingur Deutsche Bank, við Welt am Sonntag.

Til að setja upphæðina, sem hann nefnir til sögunnar, í samhengi þá nemur hún um tuttugu billjónum króna og um hálfri billjón betur. Það er rúmlega níföld landsframleiðsla Íslands. 

„Evrópa er veik sem stendur og við verðum að tækla þessi vandamál hratt og örugglega. Ella gæti orðið slys,“ segir Folkerts-Landau. „Ég er enginn dómdagsspámaður, ég er raunsæismaður.“

Stærsta ógnin stafar sem stendur frá ítölskum bönkum. Þeir eru reyrðir niður af 360 milljarða evra óhagstæðum lánum. Þarlendir sérfræðingar segja að verði ekkert að gert geti kreppan breitt úr sér um álfuna.

„Ég á ekki von á annarri kreppu líkt og árið 2008. Bankarnir nú eru betur stæðir og eiga meira eigið fé. Hins vegar sé ég fram á langa, hægfara, djúpa niðursveiflu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×