Skoðun

Að vera eða ekki, í brjóstahaldara

Kjartan Þór Ingason skrifar
Um daginn var dagur hinnar frjálsu geirvörta eða Free the Nipple eins og hann er kallaður á ensku sem var haldinn hátíðlegur á Íslandi. Óhætt er að segja að gjörningurinn hafi ekki farið framhjá neinum sem fylgist með þjóðfélagsumræðunni á klakanum góða og margir virtust hafa sterkar skoðanir hvort þeir væru með eða á móti. Eftir að hafa rennt í gegnum þau fjölmörgu ummæli sem skrifuð voru á Facebook, í athugasemdarkerfum netmiðla og við myndir baráttukvenna er greinilegt að gjörningurinn hafi farið fyrir brjóstið á sumum. Fjölmargir virtust misskilja markmið átaksins sem oftar en ekki birtist í háði, hneikslun eða kjánalegum myndlíkingum.

Á Íslandi stendur jafnrétti á sterkum fótum og erum við framar mörgum öðrum löndum í þessum málaflokki. Þrátt fyrir það er alls ekki hægt að segja að fullu jafnrétti hafi verið náð. Í því ljósi er ég ekki aðeins að tala um hina sígildu umræðu um launamun kynjanna og stöðu þeirra í stjórnum fyrirtækja heldur einnig félagslega. Í okkar frjálslynda samfélagi er því miður ekki sama hvort maður sé Jón eða Gunna og ýmsar óskrifaðar reglur gilda um hver má klæðast hverju eða hver má sleppa því að klæðast sumu.

Þegar við skellum okkur í sund á góðum degi er oft mikill fjöldi fólks í lauginni, pottinum eða að hreinsa svitaholurnar í gufubaðinu. Flestir njóta sín vel í góða veðrinu og allir eiga það sameiginlegt að hylja sig að neðan með allskonar skýlum. Þó virðist það ekki vera nóg fyrir kvengesti laugarinnar sem er einnig gert að hylja brjóstin og fela geirvörturnar á meðan karlgestirnir eru alveg frjálsir frá þessari reglu um klæðaburð þrátt fyrir að sumir þeirra beri einnig býsna stór brjóst á sinni bringu. Rökin sem notuð eru fyrir þessari mismunun á klæðnaði eru oftast þau að brjóst kvenna eru kyntákn sem eru óviðeigandi sjón fyrir karlmenn nema maðurinn og konan séu í ástarsambandi og inn í harðlæstu herbergi. Samt sem áður er brjóstkassi karlmanna einnig kyntákn sem konur og sumir karlar dást að. Hægt er að finna dæmi um það í fjölmörgum kvikmyndum, tónlistamyndböndum eða þegar myndarlegur maður rífur af sér bolinn á kvennakvöldi.

Með þessum skrifum er ég ekki að segja að allar konur verði að vera berbrjósta í sundlaugum landsins eða hvetja fólk til að vera allsbert á almanna færi. Markmið þessara greinar er sú sama og markmið dags hinna frjálsu geirvarta, að klæðaviðmið skulu gilda jafnt um karla sem og konur. Því á einstaklingurinn sjálfur að fá að ákveða hvort hann sé í brjóstarhaldara eða ekki, óháð því hvort hann sé karl eða kona. Jafnrétti þýðir að sömu lög og reglur  eigi að gilda um alla, því þurfum við sem samfélag að standa vörð um það mikilvæga grunngildi og standa með systrum okkar í baráttunni.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×