Skoðun

Að lokinni jarðhitaráðstefnu

Bjarni Bjarnason skrifar

Nú er nýafstaðin alþjóðlega jarðhitaráðstefnan Iceland Geothermal Conference. Þetta var sú þriðja í röðinni og hana sóttu um 700 manns frá um 50 löndum. Skipulag, efnistök og öll umgjörð var til fyrirmyndar og vil ég fyrir hönd Orkuveitu Reykjavíkur þakka Íslenska jarðhitaklasanum og klasastjóranum Gekon fyrir fagmannlega vinnu.



Við verðum áþreifanlega vör við það á þingum sem þessu hve lánsöm við erum að njóta jarðhitans. Við finnum það líka hversu mikil framsýni var í því fólgin að nýta hann með þeim hætti sem við höfum gert. Þar eru hitaveiturnar okkar einstakar. Orkan í hitaveitum landsins er þvílík að ef þeirra nyti ekki við dygði allt rafmagn sem framleitt er í landinu varla til að kynda íslensk hús á köldum degi.



Ef við teljum að án hitaveitnanna myndum við bara kynda með rafmagni, þá myndi það útheimta að í kuldaköstum væri ekkert rafmagn aflögu í nokkuð annað, hvorki álver, loðnubræðslu, gróðurhús eða rafmagnsbílinn og við þyrftum líklega að slökkva ljósin í húsunum okkar líka. Svo yrði kostnaðurinn margfaldur eins og þeir vita sem þurfa að kynda með rafmagni.



Það er því ekki að undra að baráttufélagar okkar gegn hlýnun jarðar víða um heim sæki okkur heim til að kynna sér hvernig hægt er að miðla þvílíkri ofurorku til samfélaga með sjálfbærum og hagkvæmum hætti.



Viljum vera bakhjarl

Það má spyrja hvað Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtækin Veitur og Orka náttúrunnar eru að gera á svona ráðstefnu því ekki erum við að sækja á erlenda markaði. Okkur finnst það ljúf skylda að upplýsa fróðleiksfúsa milliliðalaust um þau lífsgæði sem jarðhitinn hefur fært okkur, hvaða erfiðleikum við höfum mætt og hvernig við höfum greitt úr þeim. Í samtali við alþjóðlegt áhugafólk um jarðhitann og nýtingu hans á ráðstefnunni lærðum við líka margt. Rétt eins og við miðluðum mistökum okkar (sem við köllum vitaskuld reynslu á ráðstefnum sem þessari) fengum við kost á að læra af mistökum annarra. Það er alla jafna ódýrara en að þurfa að gera þau sjálf. Með þátttökunni viljum við líka vera bakhjarl þeirra fjölmörgu íslensku jarðhitafyrirtækja sem eru að hasla sér völl í útlöndum og hafa mörg hver öðlast sína þekkingu og reynslu í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækin.



Á ráðstefnunni nú í ár fannst mér sérstaklega vænt um að gestum okkar þótti ekki bara talsvert til jarðhitanýtingarinnar koma. Átak okkar Orkuveitufólks í jafnréttismálum vakti talsverða athygli. Það er nefnilega víðar en hér á landi að orku- og veitufyrirtæki eru tiltölulega eins­leitir vinnustaðir sem fara þá á mis við kosti þess að karlar og konur starfi hlið við hlið og njóti sömu kjara. Við þurfum fleiri konur til starfa og sérstaklega í þeim starfsgreinum þar sem þær eru fæstar, í iðn- og tæknistörfunum. Samstarf OR, Veitna og Orku náttúrunnar við Árbæjarskóla vakti athygli en í vetur hafa átta strákar og átta stelpur verið í valáfanga sem kenndur er hjá okkur á Bæjarhálsinum og krakkarnir kynnast góðu handverki af okkar flinkasta fólki.



Það var augljóst af ráðstefnunni að orkukerfin í heiminum eru að breytast enda verða þau að gera það. Jarðhitinn kemur þar víða við sögu en þær breytingar gefa fyrirtækjunum líka kost á að innleiða fleiri breytingar samhliða, til dæmis að jarðhitabransinn verði jafnréttisbransi. Hann er sjálfbærari þannig.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×