Að læra innan og utan vallar Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. október 2016 06:00 Hólmfríður Magnúsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir stilla sér upp í miðbæ Chongquing þar sem þær hefja leik með íslenska landsliðinu gegn Kína á fjögurra þjóða æfingamóti í hádeginu í dag. mynd/KSÍ „
Við erum búin að velta því fyrir okkur um tíma hvaða leikkerfi við getum notað ef hápressan og grunnkerfið okkar er ekki að virka og niðurstaðan varð þessi,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, um 3-5-2 leikkerfið sem stelpurnar okkar spila í vináttuleiknum gegn Kína í Chongqing í hádeginu í dag. Íslenska liðið hefur leik á fjögurra þjóða æfingamóti fyrir framan 20.000 manns klukkan 11.35 en auk Íslands og Kína taka þátt í mótinu Danmörk og Úsbekistan. Nokkra athygli hefur vakið að Freyr ætlar að spila þetta nýja kerfi sem liðið hefur ekki spilað áður.Gott gegn sterkum þjóðum „Niðurstaðan er að hópurinn okkar passar inn í þetta kerfi. Það verður gaman að prófa þetta og sjá hvernig þetta kemur út. Kína er með gott lið, þannig að við fáum einhver svör strax í fyrsta leik,“ segir Freyr. Þessi útfærsla Freys verður svolítið varnarsinnuð og hann játar því strax aðspurður hvort hann sé að undirbúa liðið betur fyrir leiki gegn mögulegum stórþjóðum á EM næsta sumar eins og Þýskalandi eða Frakklandi. „Það er svolítið þannig. Þetta er lágpressukerfi eins og við ætlum að spila þetta og það getur hentað mjög vel á móti sterkum þjóðum.“Undirbúningur bæði innan og utan vallar Stelpurnar okkar verða á meðal þátttökuþjóða á EM í Hollandi á næsta ári. Undirbúningurinn verður varla mikið betri en fyrir utan hið árlega Algarve-mót fær Freyr nú annað æfingamót gegn sterkum liðum í Kína. „Þetta er dýrmætt. Ég er mjög ánægður með að fá þetta verkefni. Ég ætla að rúlla mikið á hópnum fyrst það er svona stutt á milli leikja en líka til að gefa þeim sem hafa minna spilað eða ekkert sín tækifæri. Ég mun einnig nota allar sex skiptingarnar í öllum leikjunum býst ég við,“ segir Freyr. Landsliðsþjálfarinn segir umgjörðina mikla í kringum mótið í Chongqing og því er Freyr að nota þetta tækifæri til að láta stelpurnar, bæði þær reyndu og óreyndu, venjast fjölmiðlaathygli og ágangi pressunnar. „Það er búist við í kringum 20.000 manns á leikinn þó þetta sé bara æfingamót. Hér er allt þetta helsta eins og Mixed Zone (blandað viðtalssvæði), flass-viðtöl (fyrir sjónvarpsrétthafa) og blaðamannafundir. Svona hlutir eru í regluverkinu á EM og því er gott fyrir stelpurnar að fara í gegnum þetta núna. Við nálgumst þetta mót með mikilli virðingu og lítum á þetta sem góða æfingu,“ segir Freyr, sem hefur tekið eftir því að fjölmiðlaáhugi á íslenska kvennaliðinu hefur aukist jafnt hér heima sem á alþjóðavettvangi. „Það er mikilvægt fyrir þær sem eru óreyndari í þessu að venjast svona og líka fyrir þær sem eru vanar bara að koma enn betur fram en þær hafa gert. Leikmenn sem hafa farið í gegnum svona áður verða betri og þær sem hafa ekki farið í gegnum svona fá dýrmæta reynslu.“Fá smá frítíma Enginn í landsliðinu hefur áður komið til Kína að sögn Freys þannig að allur hópurinn er að upplifa eitthvað nýtt. „Þetta er allt annar menningarheimur. Hér er töluð lítil enska og umferðin er á einhverju allt öðru stigi en ég hef upplifað. Ég sit í bíl núna og vona bara að ég komist á leiðarenda,“ segir Freyr kíminn. „Við erum að reyna að njóta þess að upplifa eitthvað af nýjum hlutum en fyrst og fremst er þetta bara rútína. Stelpurnar æfa, hvílast, borða og sofa. Svo eftir það taka við leikir og endurheimt. Við erum samt í nýju landi og hér er ýmislegt nýtt að sjá. Ég reyni að gefa leikmönnum smá frítíma til að fara út á kvöldin þó það sé ekki bara nema til að fara rétt út af hótelinu,“ segir Freyr Alexandersson.
Fótbolti Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Enski boltinn „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt „Vorum svo ógeðslega nálægt þessu“ „Hann var alltaf mættur“ Einkunnir Íslands: Albert og Hákon bestir í grátlegu tapi Sjá meira
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti