Enski boltinn

AC Milan ætlar að reyna við Depay í janúar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Memphis hefur ekki náð sér á strik.
Memphis hefur ekki náð sér á strik. vísir/getty
Forráðamenn ítalska liðsins AC Milan eru að skoða þann möguleika að fjárfesta í Memphis Depay frá Manchester United í janúar.

Þessi 22 ára Hollendingur gekk til liðs við United í júní árið 2015 og borgaði enska félagið 25 milljónir punda fyrir leikmanninn sem hefur ekki staðið undir væntingum hjá félaginu. Hann hefur í tvígang komið inn á sem varamaður á þessari leiktíð fyrir United.

Samkvæmt ítölskum miðlum ætlar AC Milan að reyna fá leikmanninn til liðsins í janúar og borga þá 24 milljónir punda fyrir Depay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×