Innlent

Ábyrgðin ekki stúlknanna

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Vísir/Getty
„Það var að sjálfsögðu ekki ætlunin að varpa ábyrgðinni á stúlkurnar á dreifingu mynda af þeim,“  segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdarstjóri Barnaheilla um ummæli sín í fréttum RÚV í gær, þegar Vísir hafði samband við hana.

Ummæli Ernu féllu í kjölfar fréttar Fréttablaðsins í gær um íslenska karlmenn sem skiptast á myndum af fáklæddum íslenskum stúlkum. Yngstu stúlkurnar eru á fjórtánda aldursári.

Erna sagði í samtali við RÚV að aðalatriði væri að stúlkur leyfðu ekki myndatökur af sér þar sem hætta væri á að myndirnar gætu lent hvar sem er.

Ummælin vöktu talsverða athygli og þótti mörgum sem Erna sneiddi framhjá hlut þeirra sem skiptast á myndunum. Hópur fólks sendi bréf á Ernu og vildi benda henni á að aðalatriði málsins sé að óprúttnir aðilar dreifi myndunum í leyfisleysi.

„Vissulega er mikilvægt að kenna ungu fólki ábyrga tækninotkun og efla fræðslu um þær hættur sem geta m.a. fylgt notkun snjallsíma. Því fer hinsvegar fjarri að í þessu felist aðal atriði vandans. Aðalatriðið er að óprúttnir aðilar skuli dreifa myndum í óleyfi,“ segir í bréfinu.

„Að segja að þetta sé „aðalatriðið“ er óheppilegt orðalag,“ segir Erna. Sem hefur sent svar til þeirra er sendu henni bréfið og útskýrt orð sín.

Sú staða sé hins vegar enn sem komið er þannig að mynd sem einu sinni er orðin til geti alltaf farið á netið. Þaðan sé nær ógjörningur að uppræta hana. Því sé mikilvægt fyrir alla, bæði stúlkur og drengi, að vera meðvituð um slíkt. 


Tengdar fréttir

Segja klámið sem þeir deila vera íslenskt

Á vefsíðu á netinu er klámi dreift sem fullyrt er að sé íslenskt. Svo virðist sem notendur síðunnar sæki í íslenskt klám. „Hún er íslensk. Alla vega stynur hún ójá... á íslensku,“ segir einn notandi síðunnar.

Nektarmyndir af stúlkum á fermingaraldri á spjallsíðu

Erlend spjallsíða hefur að geyma myndir af fáklæddum íslenskum stúlkum sem eru allt niður í fjórtán ára. Lögregla rannsakar málið og reynir að fá síðunni lokað. Alvarlegt brot gegn réttindum barns segir framkvæmdastjóri Barnaheilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×