Bíó og sjónvarp

Abraham Lincoln, Ronaldo og Dr. Dre á kreditlista Sveppa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mikið hefur verið rætt um kreditlistann fyrir myndina Algjör Sveppi og Gói bjarga málunum sem frumsýnd er í dag.

Vísir sýnir kreditlistann í heild sinni en alls eru 13.300 nöfn á listanum. Á honum kennir ýmissa grasa og má þar meðal annars finna Abraham Lincoln Bandaríkjaforseta, söngkonuna Adele, rapparann Dr. Dre og knattspyrnukappann Cristiano Ronaldo.

Sverrir Þór Sverrison, öðru nafni Sveppi, Bragi Þór Hinriksson leikstjóri myndarinnar og Finnur Pálma, tölvunarfræðingur fengu hugmyndina að kreditlistanum og buðu fólki að skrá sig á sveppi.is til að fá nafn sitt á listann. 

Talsvert fleiri en 13.300 skráðu sig til leiks en aðstandendur myndarinnar ákváðu að klippa út öll óviðeigandi nöfn.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×