Erlent

Abdeslam segist hafa hætt við að sprengja sig upp til að bjarga mannslífum

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Abdeslam segist hafa guggnað á því að sprengja sjálfan sig í loft upp.
Abdeslam segist hafa guggnað á því að sprengja sjálfan sig í loft upp. Samsett/AFP-Getty
Salah Abdeslam, sem talinn er einn af höfuðpaurum hryðjuverkaárásanna í París, segist hafa hætt við að sprengja sig í loft upp til að koma í veg fyrir meira manntjón.

Þetta fullyrðir bróðir hans sem fékk að heimsækja hann í fangelsið í Belgíu þar sem hann er í haldi. Franskir fjölmiðlar greina frá þessu en eitt hundrað og þrjátíu létu lífið í árásunum í París í Frakklandi í nóvember í fyrra.

Sjá einnig: Dramatískt myndband af handtöku lögreglu í Brussel

Salah Abdeslam sem var einn árásarmannanna í París náði að flýja af vettvangi. Hann er talinn vera einn af þeim sem skipulögðu árásirnar í París þar árásarmennirnir hófu skotárásir á nokkrum stöðum og sprengdu þrjár sprengjur.

Abdeslam var handtekinn um miðjan mars í Belgíu aðeins nokkrum dögum fyrir hryðjuverkaárásirnar á Brussel en hann er Belgi. Talið er að hann hafi komið þangað skömmu eftir árásirnar í París og falið sig þar fyrir lögreglunni.

Sjá einnig: Salah Abdeslam framseldur til Frakklands

Bróðir hans Mohamed Abdeslam hefur nú fengið að heimsækja hann í fangelsið. Hann segir bróður sínum hafi snúist hugur þegar á hólminn var komið og hætt við að sprengja sig í loft upp. Þannig hafi hann komið í veg fyrir meira manntjón.

Þá segir hann bróðir sinn hafa óskað eftir því að verða framseldur til Frakklands til að geta svarað fyrir árásirnar þar. Belgíska lögreglan hefur fundið vísbendingar um tengsl Abdeslam við árásirnar í Brussel. Hann fullyrðir hins vegar að hann hafi á engan hátt komið nálægt þeim.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×