Innlent

Áætlun um afnám gjaldeyrishafta verður ekki birt

Heimir Már Pétursson skrifar
Forsætisráðherra segir það ekki þjóna hagsmunum Íslands að áætlun um afnám gjaldeyrishafta verði birt eða greint frá því hvenær höftin eiga að hverfa.
Forsætisráðherra segir það ekki þjóna hagsmunum Íslands að áætlun um afnám gjaldeyrishafta verði birt eða greint frá því hvenær höftin eiga að hverfa. vísir/pjetur/stefán
Forsætisráðherra segir að áætlun um afnám gjaldeyrishafta verði ekki birt opinberlega, enda þjóni það ekki hagsmunum Íslands. Þá verði heldur ekki greint frá því hvenær gjaldeyrishöftin verði afnumin.

Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna spurði Sigmund Davið Gunnlaugsson forsætisráðherra út í áætlun um afnám gjaldeyrishafta í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun og vitnaði til orða ráðherrans í þeim efnum frá síðasta vori.

„Og hæstvirtur forsætisráðherra hafði nokkur hreystileg ummmæli um það að ríkisstjórnin hyggðist hraða afnámi gjaldeyrishafta og boðaði að ný áætlun um afnám hafta myndi liggja fyrir í september á því ári, þ.e.a.s. í september síðast liðnum,“ sagði Steingrímur.

Bloomberg fréttastofan hafi haft eftir forsætisráðherra að það myndi ekki taka langan tíma að klára þetta verk.

„Og reyndar kom fram í sömu frétt að áætlunin myndi m.a. byggjast á persónulegum hugmyndum hæstvirts forsætisráðherra um það hvernig yrði í þetta farið,“ sagði Steingrímur.

Forsætisráðherra segir Bloomberg ekki hafa haft rétt eftir honum.

„Til dæmis varðandi það að afnámsáætlun ætti að byggjast á , eins og háttvirtur þingmaður orðaði það, að einhverju leiti á hugmyndum mínum. Hið rétta var að ég sagðist hafa einhverja hugmynd um hvernig slík afnámsáætlun myndi líklega líta út,“ sagði Sigmundur Davíð.

Þá sagði forsætisráðherra að áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyrishaft verði sennilega ekki birt opinberlega.

„Það þjónar ekki tilganginum að gera þá áætlun sem stjórnvöld hafa um afnám hafta opinbera. Gæti raunar miklu frekar þjónað hagsmunum vogunarsjóða og annara kröfuhafa til dæmis í slitabú bankanna. Svo það er ekki við því að búast að stjórnvöld muni útlista nákvæmlega hvernig þau sjá fyrir sér og hvenær að höftin verði afnumin,“ segir forsætisráðherra.

„Það ríður ekki við einteyming óheppni hæstvirts forsætisráðherra í samskiptum við blaðamenn, af því að svörin eru eiginlega  ævinlega þau að ekki hafi verið rétt eftir honum haft. Það er nokkur vandi, sagði Steingrímur J. Sigfússon og sagðist þá telja eðlilegt að gildandi áætlun um afnám gjaldeyrishafta yrði þá afnumin, þar sem Seðlabanki og fleiri ynnu eftir henni.

... sagði Steingrímur J. Sigfússon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×