Innlent

Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS). 

Rætt var við Ólaf í kvöldfréttum Stöðvar 2 og má nálgast viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði eða hér. 

Samkeppniseftirlitið sektaði fyrr í dag MS um 370 milljónir króna vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga sem felur í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu. 

Brot MS fólust í því að fyrirtækið seldi ógerilsneydda hrámjólk á 17 prósent hærra verði til Mjólku og síðar Mjólkurbúsins Kú heldur en fyrirtækið seldi tengdum fyrirtækjum.  

Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á málinu í byrjun síðasta árs þegar Mjólkurbúið Kú ehf. sem var m.a. í eigu Ólafs Magnússonar kvartaði til eftirlitsins en Ólafur stofnaði einnig fyrirtækið Mjólku ehf. sem hóf samkeppni við MS árið 2005. 



Rannsóknin leiddi í ljós að MS hefði mismunað Mjólkurbúinu Kú ehf. og áður Mjólku á meðan hún var í eigu fyrri eigenda, með því að selja fyrirtækjunum ógerilseydda hrámjólk á allt að 17 prósent hærra verði en gilti gagnvart aðilum tengdum MS, þ.e. Kaupfélags Skagfirðinga og síðar Mjólku þegar hún hafði verið seld til Kaupfélags Skagfirðinga. Var þessi mismunun í hráefnisverði að mati Samkeppniseftirlitsins til þess fallin að veikja Mjólku sem keppinaut MS og tengdra félaga og stuðla að sölu félagsins til Kaupfélags Skagfirðinga (KS). Eftir að Mjólka komst í eigu KS fékk félagið hrámjólk á allt öðru og lægra verði en áður frá MS, en þegar félagið var keppinautur MS og KS á mjólkurvörumarkaði.




Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins segir orðrétt:

„Keppinautar MS þurftu því ekki aðeins að sæta því að markaðsráðandi fyrirtæki beitti þá mismunun í verði heldur einnig að félög tengd MS fengju þetta hráefni á mun lægra verði sem var til þess fallið að veita þeim verulegt samkeppnisforskot gagnvart Mjólku I og Mjólkurbúinu. (...) Er það því niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að MS hafi með alvarlegum hætti brotið gegn c. lið 2. mgr. 11. gr. samkeppnislaga.“

Einar Sigurðsson forstjóri MS gaf ekki kost á viðtali en sagði í samtali við Stöð 2 fyrr í dag að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins kæmi verulega á óvert og að MS hefði þegar ákveðið að vísa henni til áfrýjunarnefndar Samkeppnismála. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×