Á yfir höfði sér ákærur vegna misnotkunar Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. maí 2013 16:24 Kaitlyn Hunt var handtekin þann 16. febrúar fyrir misnotkun.
Kaitlyn Hunt, átján ára gömul stúlka frá Flórída í Bandaríkjunum, á yfir höfði sér tvær ákærur vegna kynferðislegrar misnotkunar á fimmtán ára stúlku. Málið hefur vakið mikla athygli vestanhafs þó fjölmiðlar hafi lítið fjallað um það fram að þessu. Foreldrar fimmtán ára kærustu Kaitlyn kærðu hana þegar upp komst um samband stúlknanna og var hún handtekin í kjölfarið þann 16. febrúar. „Þetta fólk reyndi aldrei að hafa samband við okkur,“ segir móðir Kaitlyn um foreldra kærustunnar, og sagðist ekki hafa haft hugmynd um að þau væru mótfallin sambandinu. „Þau telja að dóttir mín hafi snúið dóttur þeirra til samkynhneigðar.“ Foreldrar hinnar stúlkunnar reyndu einnig að láta reka Kaitlyn úr skólanum, og þrátt fyrir að stjórn skólans hafi hafnað því og dómari hafi veitt Kaitlyn leyfi til að klára önnina, tókst foreldrafélagi skólans að bola henni burt rétt fyrir útskrift. Segir móðir Kaitlyn að stúlkurnar hafi hafið sambandið í byrjun skólaársins og foreldrar beggja hafi vitað af því löngu áður en kæran var lögð fram. Hefur Kaitlyn verið boðið að sleppa við fangelsisvist gegn því að hún verði í stofufangelsi í tvö ár og á skilorði í eitt. Netverjar hafa hópast saman í stuðningi sínum við Kaitlyn, þar á meðal aktívistasamtökin Anonymous, sem sendu frá sér tilkynningu til yfirvalda í Flórída. „Kaitlyn Hunt er klár, ung stúlka sem var í sambandi við aðra stúlku með beggja samþykki, á meðan þær voru báðar undir lögaldri. Hún á framtíðina fyrir sér og það er fjöldi fólks, í raun þúsundir, sem munu ekki láta ykkur komast upp með að eyðileggja það með ömurlegum og handahófskenndum vinnubrögðum.“
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira