Innlent

Á þriðja hundrað greinst með inflúensu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Tilfellum mun sennilega fara fækkandi á næstu vikum, segir sóttvarnalæknir.
Tilfellum mun sennilega fara fækkandi á næstu vikum, segir sóttvarnalæknir. vísir/vilhelm
Alls hafa 280 manns greinst með inflúensu frá því í lok nóvember. Sóttvarnalæknir telur hins vegar að byrjað sé að draga úr inflúensunni hér á landi og að gera megi ráð fyrir að tilfellum fækki á næstu vikum.

Fram kemur á vef landlæknis að veikin sé hlutfallslega algengari meðal 60 ára og eldri, en meðalaldur þeirra sem greinst hafa frá því í nóvember er 63 ár.  

Frá því í byrjun september 2016 hafa alls 119 einstaklingar legið á Landspítala vega inflúensu, þar af greindust tíu í síðustu viku, sem er nokkur fækkun borið saman við vikurnar á undan. Meðalaldur þeirra sem lagst hafa inn er 74 ár.

„Inflúensan er útbreidd í samfélaginu en sennilega er byrjað að draga úr henni og gera má ráð fyrir að tilfellum fækki á næstu vikum. Inflúensa A(H3N2) er sá stofn sem hefur verið í dreifingu, en ekki er útilokað að inflúensa A(H1N1) eða inflúensa B eigi eftir að koma í kjölfarið á næstu vikum,“ segir á vef landlæknis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×