Innlent

Á svipuðum stað og árið 2004

Linda Blöndal skrifar
Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans kynnti skýrsluna í dag í Hörpu. Spáin er jákvæð, að hagvöxtur haldi áfram og verði að meðaltali 3,5 prósent til ársins 2017. Verðbbólgan verði að meðaltali rúm 3 prósent til 2017. Atvinnuleysi mun minnka áfram, fasteignverð hækka og byggingakostnaður lækka.  

Þrjár meginstoðir hagvaxtarins

Einkaneyslan mun bera uppi hagvöxtin ásamt fjárfestingum í ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Líta þarf til ársins 2000 til að sjá jafn mikla fjárfestingu þar en ellefu togarar upp á 27 milljarða króna verða keyptir til landsins á þremur árum,. Varðandi erlenda fjárfestingu er í spánni gert ráð fyrir erlendri fjárfestingu í  kísilverum á Húsavík og í Helguvík eða þeirri stóriðiju sem hefur tryggt sér næga orku.

Einkaneyslan vex – nýrri bílar – dýrari raftæki

Gangi spáin eftir verður mesti vöxtur í einkaneyslu á tímabilinu frá því árið 2007.  Kröftugur vöxtur einkaneyslunnar heldur áfram til 2017. Fólk mun hafa meira á milli handanna vegna skuldaniðurfærslna og skattabreytinga og talið er að neytendur og seljendur séu farnir að haga sér eins og boðuð lækkun vörugjalda sé orðin að veruleika, eins og reifað er í spá Landsbankans.

„Það sem veldur kannski mestum áhyggjum er að einkaneyslan vex tiltölulega hratt ef við viljum halda verðstöðugleika til lengri tíma. Þetta mun verða mikið í varanlegum neysluvörum, nýjum bílum og dýrari raftækjum. Sú einkaneysla verður öll innflutt og þar af leiðandi minnka afganginn af vöruskiptum okkar við útlönd á komandi árum”, sagði Daníel í fréttum stöðvar tvö í kvöld. „Engu að síður þá verður einkaneyslan ekki óeðlilega hár hluti af landsframleiðslu í lok spátímans 2017. Hún er kannski bara að vaxa aðeins of hratt”.

Kaupmáttur hækkar áfram

Kaupmáttur launa hækkar um rúmlega 4 prósent á árinu sem talin er vísbending um að áherslur við gerð síðustu kjarasamninga hafi skilað sér vel. Í spánni er gert ráð fyrir svipuðum hækkunum og í síðustu kjarasamningum en einnig fyrir  talsverðu launaskriði.

Höfum lent á flestum sviðum

„Það má segja að við séum búin að ná lendingu á flestum vígstöðvum, hvað varðar atvinnuleysi, einkaneyslu, gengi krónunnar og verðbólguna. Það má segja að við séum svona komi aftur á byrjunarreit eins og við vorum kannski 2004, rétt áður en þenskuskeiðið fór á fullt flug.  Nú ríður á að við lærum eitthvað af mistökum fortíðarinnar”, sagði Daníel einnig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×