Skoðun

Á súkkulaði treystum vér!

Freyja Steingrímsdóttir skrifar

Ekki eru allir sammála um hvað gera þurfi í gjaldmiðilsmálum hérna á Íslandi. Flestir flokkar virðast þó stefna að því að endurskoða þau og íhuga jafnvel að kasta krónunni og taka upp utanaðkomandi gjaldmiðil. Sumir vilja skoða að taka upp Bandaríkjadalinn eða tengja krónuna við hann. Aðrir nefna að taka upp kanadísku lúnuna og enn aðrir horfa öfundaraugum til gjaldmiðla nágrannaþjóða okkar – Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur.

Þetta hefur gengið svo langt að nú tel ég fulla ástæðu til þess að spyrja: Hvers vegna ekki að taka upp Disney-dollarann? Já, ég held að gjaldmiðillinn sem notaður er í Disney-landi í Bandaríkjunum yrði jafnvel heppilegri gjaldmiðill en íslenska krónan. Það nota fleiri Disney dollarann daglega en íslensku krónuna og hann felur í sér meiri stöðugleika! Hvern langar ekki í gjaldmiðil sem skartar Mikka mús og setur traust sitt á súkkulaði? Ég bara spyr.

Margir gera sér ekki alveg grein fyrir því hversu hjákátlegt það er að 300.000 manna þjóð notist við eigin gjaldmiðil. Trúverðugleiki krónunnar er enginn.

Það er ekkert að krónunni – við þurfum bara stöðuga hagstjórn! Segja sumir. Því miður sýnir sagan okkur annað. Ef skoðað er hvernig íslensku krónunni hefur vegnað gagnvart þeirri dönsku frá aðskilnaði þeirra árið 1920 fær maður sjokk. Þá var ein íslensk króna jafngild einni danskri. Í dag þarf 2.200 upphaflegar íslenskar krónur til að kaupa eina danska (því tvö núll voru tekin aftan af íslensku krónunni á 9. áratugnum).

Þótt ég elski súkkulaði og fyndist ægilega skemmtilegt að taka upp Disney-dollarann, þá er það ekki raunhæfur möguleiki. Það er ekki heldur raunhæfur möguleiki að taka upp Bandaríkjadalinn, kanadísku lúnuna – eða halda í íslensku krónuna.

Eini raunhæfi möguleikinn er upptaka evrunnar. Sama þó að á evrusvæðinu hafi ekki verið eintómt gaman og kandífloss síðustu ár, frekar en á öðrum efnahagssvæðum. Að fá að búa við gjaldgengan, stöðugan gjaldmiðil er ein allra mikilvægasta búbót sem virðulegt löggjafarþing okkar gæti komið í kring á næstu árum.

Ég vildi að evran þætti meira sexí, því hún er ansi hörð í horn að taka miðað við hremmingar síðustu ára. Já, hún hefur sætt áföllum, en þegar evran var tekin í notkun fyrir aðeins rúmum áratug síðan var hún töluvert lægri í verði en Bandaríkjadollarinn og helmingi lægri en pundið. Hún hefur styrkst gagnvart þessum gjaldmiðlum síðan og nú þarf um 1,3 dali til að kaupa eina evru. Auk þess er meirihluti inn- og útflutnings okkar til Evrópusambandsríkja. Það er bara heilbrigð skynsemi að taka upp þann gjaldmiðil sem við stundum stærstan hluta utanríkisviðskipta okkar í.

Samfylkingin er með skýra stefnu þegar kemur að gjaldmiðilsmálum. Þó við bjóðum ekki upp á ótakmarkaðar birgðir af súkkulaði þá er okkur kappsmál að flytja stöðugleikann inn með því að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Það er eitt stærsta hagsmunamál heimila, fyrirtækja og ungs fólks til framtíðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×