Sport

Á Siver möguleika gegn McGregor?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Conor McGregor á opinni æfingu í vikunni.
Conor McGregor á opinni æfingu í vikunni. Vísir/Getty
Í nótt mætir írska stórstjarnan Conor McGregor Þjóðverjanum Dennis Siver. UFC hefur eytt miklu púðri í að kynna bardagann án þess þó að minnast mikið á Dennis Siver.

Dennis Siver er 36 ára Þjóðverji og á 18 bardaga að baki í UFC. Þessi reynslumikli bardagamaður hefur þó aldrei komist nálægt titilbardaga en er ágætlega virtur. Hann er þekktur fyrir góð spörk enda með bakgrunn úr tækvondó.

Einhverjir Íslendingar ættu að kannast við kappann enda barðist hann við Árna Ísaksson árið 2006. Árni fór með sigur af hólmi en bardagann má sjá á vef MMA Frétta hér.

Flestir eru á því að Siver eigi ekki mikla möguleika á sigri gegn McGregor og má segja að verið sé að leiða lamb til slátrunar. John Kavanagh, yfirþjálfari McGregor, telur að þessi bardagi eigi að sýna getu McGregor - nokkurs konar „showcase“ bardagi fyrir McGregor.

Ef litið er á stíl beggja bardagamanna verður þetta erfitt fyrir Siver. Þjóðverjinn er fyrst og fremst sparkboxari en þar er McGregor mun betri (að minnsta kosti á pappírum). McGregor er hærri og með tíu cm lengri faðm svo Siver þarf að komast inn fyrir faðm McGregor til að koma höggum á hann. Það gæti verið þrautinni þyngri þar sem McGregor er sneggri og auk þess mjög hreyfanlegur.

Siver gæti brugðið á það ráð að fara undir högg McGregor þegar Írinn sækir fram og náð fellu. McGregor hefur aldrei verið tekinn niður í UFC og Siver er ekki þekktur fyrir að vera með kraftmiklar og snöggar fellur. Þetta er möguleiki en gæti reynst erfitt.

Conor McGregor hefur lofað því að klára Siver á fyrstu tveimur mínútum bardagans. Siver gæti nýtt sér ákefð McGregor í að klára bardagann fljótt gegn honum og reynt að koma með vel tímasett gagnhögg. Hafa verður í huga að Conor McGregor er nákvæmur sem skurðlæknir í sparkboxinu og er það hægara sagt en gert að beita gagnárásum gegn honum.

Styrkleikar Siver

  • Góð spörk og ágætlega höggþungur (5 sigrar eftir rothögg)
  • Lunkinn í gólfinu og hefur klárað 9 bardaga eftir uppgjafartök
  • Reyndur (18 bardagar í UFC)
  • Líkamlega sterkur
Veikleikar Siver

  • Hakan virðist vera að gefa sig með árunum (þolir færri högg en áður)
  • Léleg vörn gegn uppgjafartökum (5 töp eftir uppgjafartök)
Miðað við þetta - á Siver möguleika gegn McGregor? Það má segja að stærsti möguleiki Siver í bardaganum sé „heppnishögg“ sem rotar McGregor. Líkurnar á því eru ekki miklar en það getur allt gerst í MMA.

Takist Siver að stöðva McGregor væru það gífurlega óvænt úrslit og kæmust ofarlega á lista yfir óvæntustu úrslit í sögu MMA (listann má sjá hér). Það verður erfitt að stöðva McGregor en ávinningurinn fyrir Siver verður gífurlegur takist honum ætlunarverk sitt.

Bardaginn fer fram aðfararnótt mánudags og hefst útsending klukkan þrjú um nóttina. Bardagakvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir

Conor: Ég mun flengja Siver

UFC kynnti í gær dagskrá sína fyrir 2015 og þarf ekki að koma á óvart að Írinn Conor McGregor hafi stolið senunni á viðburðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×