Innlent

Á níunda tug nemenda útskrifuðust frá Háskólanum á Bifröst

atli ísleifsson skrifar
Frá útskriftinni fyrr í dag.
Frá útskriftinni fyrr í dag. Háskólinn á Bifröst
Alls útskrifuðust 82 nemendur úr öllum deildum Háskólans á Bifröst, námi í verslunarstjórnun og Háskólagátt á háskólahátíð fyrr í dag.

Vilhjálmur Egilsson, rektor skólans, sagði það vera mikilvægt fyrir skólann að styrkja enn frekar stöðu sína á sviði fjarnáms og því sé nú verið að fara yfir þau tækifæri sem þurfi að grípa með uppfærslu á kerfum og endurnýjun á aðstöðu nemenda og tæknibúnaði í skólanum. Markmiðið sé að verja ótvírætt forystuhlutverk háskólans á þessu sviði.

Rektor sagði í útskriftarræðu sinni að Bifrestingum gengi almennt mjög vel á vinnumarkaði, „enda séu þeir fólk sem leysi vandamál og kunni að vinna með öðrum. Samfélagið nú sem í framtíðinni gengi ekki upp nema fólk ynni vel saman.“

Vilhjálmur Egilsson.Háskólinn á Bifröst.
Vilhjálmur sagði Háskólann á Bifröst vera ótrúlega gott samfélag sem hafi mótandi áhrif á alla sem verða hluti af því.  „Skólinn nýtur þess að hafa nemendur sem vilja ná árangri og taka að sér leiðandi hlutverk í atvinnulífinu og samfélaginu. Skólinn nýtur líka kennaranna og annars starfsfólks sem hefur metnað til að skila góðu verki og skila skólanum sterkum áfram inn í framtíðina. Við stöndum í þakkarskuld við alla nemendur og starfsmenn sem hafa lagt sitt af mörkum í skólanum okkar. Allt þetta fólk er að vinna íslensku samfélagi mikið gagn,“ sagði Vilhjálmur.

Í tilkynningu frá skólanum segir að útskriftarverðlaun hlutu í grunnnámi, Svanberg Halldórsson, viðskiptadeild, Edda Bára Árnadóttir, lagadeild og Sigurður Kaiser félagsvísindadeild. „Útskriftarverðlaun hlutu í meistaranámi Sigurbjörg R Hjálmarsdóttir,  viðskiptadeild, Þórunn Unnur Birgisdóttir, lagadeild og Friðrik Árnason og Sigríður Valdimarsdóttir,félagsvísindadeild. Að auki fengu eftirfarandi þrír nemendur felld niður skólagjöld á haustönn í tilefni af framúrskarandi námsárangri, Vera Dögg Höskuldsdóttir, viðskiptadeild, Þórarinn Halldór Óðinsson lagadeild og Pétur Steinn Pétursson  félagsvísindadeild.

Ræðumaður fyrir hönd viðskiptadeildar var Svanberg Halldórsson, fyrir hönd lagadeildar Edda Bára Árnadóttir og fyrir hönd félagsvísindadeildar Sif Guðmundsdóttir. Ræðumaður fyrir hönd meistaranema var Helga Margrét Friðriksdóttir, viðskiptadeild.

Karlakórinn Söngbræður sá um söngatriði við útskriftina við undirleik Heimis Klemenzssonar,“ segir í tilkynningunni.

Háskólinn á Bifröst

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×