Lífið

A-manneskja með dassi af B

Fréttablaðið/Daníel
Nafn: Hildur Ragnarsdóttir

Aldur: 25 ára

Starf: Eigandi verslunarinnar Einveru á Laugaveginum.

Hverfi: 101 því þar vinn ég og er uppalin. En ég bý í miðbæ Hafnarfjarðar og líkar mjög vel.

Stjörnumerki: Krabbi.

Hreyfing: Teljast hlaup á eftir strætó sem hreyfing? Annars er ég voða hrifin af jóga, þótt ég fari alls ekki nógu oft.

Uppáhaldslistamaður: Frida Kahlo er í uppáhaldi hjá mér. Hún gerði bæði ótrúlega falleg verk og var mjög áhugaverður karakter sjálf.

Uppáhaldsmynd: Garden State ef ég verð að velja eina. Annars hef ég verið sökker fyrir Tim Burton og Johnny Depp saman síðan ég var unglingur.

A- eða B-manneskja: A-manneskja með dassi af B.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×