Lífið

Á fullu við að standsetja nýtt stúdíó

gyða lóa ólafsdóttir skrifar
Logi segir framkvæmdirnar ganga vel og vonir standa til að húsnæðið verði tilbúið í byrjun september.
Logi segir framkvæmdirnar ganga vel og vonir standa til að húsnæðið verði tilbúið í byrjun september.
„Við erum sem sagt að flytja í nýtt húsnæði og erum að byggja og hanna rýmið og reyna að gera þetta að próper vinnuaðstöðu,“ segir tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson en útgáfufyrirtækið Les Fréres Stefson ásamt útgáfunni Sticky Records hafa undanfarnar vikur unnið hörðum höndum að endurbótum á húsnæði í miðbænum sem hýsa mun bæði fyrirtækin.

„Við byrjuðum á að rífa eitthvað niður og flota allt,“ segir Logi en auk þess að njóta dyggrar aðstoðar fagmanna í byggingabransanum hefur Logi ásamt hinum látið hendur standa fram úr ermum í framkvæmdunum.

Vonir standa til að húsnæðið verði tilbúið í byrjun september og þá verði hafist handa við að hlaða út slögurum. Það er hins vegar ekki nóg að reisa veggi og flota gólf og leitar Logi eftir góðum ábendingum um smekklegar mublur, lampa og plastplöntur.

Fyrir utan framkvæmdir og fyrirhugaða hljóðversflutninga er annars nóg um að vera hjá Loga en hann er með puttana í fjölmörgum tónlistarverkefnum. Næst á döfinni er að hita upp fyrir poppprinsinn Justin Bieber með Sturla Atlas og stuttu eftir það leggja þeir félagar land undir fót. „Nú erum við að undirbúa fyrsta Evrópugigg Sturla Atlas. Það er núna rétt eftir Bieber-ævintýrið,“ segir Logi en þá spila þeir ásamt bandarísku tónlistarkonunni Nite-Jewel í London. Það er óhætt að segja að það sé nóg um að vera hjá Sturla Atlas, því stutt er síðan vefsíða tímaritsins i-D birti greinargóða úttekt á sveitinni ásamt myndbandi.

Hljómsveitin Retro Stefson er svo á leið í tónleikaferð í október en sveitin fagnar tíu ára afmæli á þessu ári og segir Logi að von sé á tilkynningu frá sveitinni síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×