Tónlist

Á fullu í tökum

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Emmsjé Gauti
Emmsjé Gauti
Emmsjé Gauti gefur út nýtt myndband fyrir lagið 24 í vikunni. Tökurnar hófust í júní en að sögn Gauta frestuðust tökur þar til í seinustu viku.

„Ég er búinn að fá svo mikið af flúrum í millitíðinni að í sumum klippunum er ég með hreinar hendur en í öðrum er ég kominn með „full sleeve“ húðflúr.“

Lagið er af plötunni Þeyr sem Gauti gaf út í nóvember í fyrra en O.B.O.C. leikstýrði myndbandinu og Redd Lights gerðu taktinn.

Samkvæmt Gauta hefur hann verið á fullu við að skjóta myndband fyrir hvert einasta lag á plötunni.

Hér fyrir neðan má streyma plötunni Þey.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×