Innlent

Á fjórða tug ábendinga um vændi á Íslandi

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist á fjórða tug ábendinga um vændisstarfsemi á árinu. Mikil aukning hefur orðið í framboði vændis í Reykjavík og sést það meðal annars á mikilli virkni á auglýsingasíðum á netinu.

Ábendingarnar hafa borist lögreglu með formlegum og óformlegum hætti en stór hluti þeirra berst í gegnum Facebook síðu lögreglunnar. Þegar slíkar tilkynningar berast skoðar lögreglan alltaf hvort um mansal geti verið að ræða. Sérstakt mansalsteymi lögreglunnar var sett á fót í apríl sem fylgist grannt með vændismarkaðnum hér á landi.

„Við erum að sjá í dag aukningu á auglýsingum á vændi og sérstaklega í gegnum alþjóðlegar vefsíður. Það hefur orðið gríðarleg aukning núna síðastliðið ár og það er staðreynd,“ segir Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi og sérfræðingur í mansalsmálum.

Snorri segir að aukin áhersla á málaflokkinn hjá lögreglunni, m.a með nýja mansalsteyminu, sé ein skýring á fleiri ábendingum sem berist embættinu. Einnig hafi aukin vitundarvakning í samfélaginu um mansal og vændi áhrif.  Þá eigi fjölgun ferðamanna sem sækja Ísland þátt í auknu framboði vændis.  

Í gær var greint frá því að tvö mansalsmál á Íslandi væru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þau  tengjast bæði vændi. Fjórir einstaklingar koma þar við sögu og er rannsókn málanna í fullum gangi.

Fjöldi kvenna á Íslandi hefur auglýst vændisþjónustu á vefsíðum á netinu. Á einni vefsíðunni eru tæplega tvö hundruð auglýsingar en í mörgum tilfellum fylgja íslensk númer með. Á umræddri vefsíðu er hægt að velja um það að kaupa þjónustu í Reykjavík, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, í Kópavogi og á Akureyri.

Í flestum auglýsingunum er tekið fram að konurnar vinni sjálfstætt og segjast þær flestar vera frá öðru landi en Íslandi. Þá bjóða karlmenn einstaka sinnum upp á þjónustu á síðunni.


Tengdar fréttir

Eigendur Airbnb-íbúða í miðbænum kvarta undan vændi

Leigusali lýsir erfiðri reynslu af vændisstarfsemi í íbúð hans. Mikið um að vændi sé auglýst í miðborg Reykjavíkur á netinu. Sjaldgæft er að þeir sem selja sig leiti til lögreglu eða veiti upplýsingar. Leigusalar vilja meira samstarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×