Tónlist

Á eftir plötu kemur barn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Idol-stjarnan Carrie Underwood er búin að gefa út nýtt lag, Something In The Water, en lagið verður að finna á safndiski hennar, Greatest Hits: Decade #1, sem kemur út þann 9. desember næstkomandi.

Á safndiskinum verða stærstu lög Carrie, svo sem Jesus Take The Wheel, Before He Cheats, Blown Away og So Small.

Carrie er hvað þekktust fyrir að bera sigur úr býtum í fjórðu seríu American Idol árið 2005 en hún tilkynnti nýverið að hún ætti von á sínu fyrsta barni með eiginmanninum Mike Fisher.

Frumburðuinn er væntanlegur næsta vor en Carrie og Mike giftu sig árið 2010 og var brúðkaupið í ekta suðurríkjastíl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×