Lífið

Á batavegi eftir heilablóðfall

Elín Albertsdóttir skrifar
María er hress og glöð þrátt fyrir erfið veikindi. Það er ekki hægt að sjá hversu mikla erfiðleika hún hefur gengið í gegn um á þessari mynd.
María er hress og glöð þrátt fyrir erfið veikindi. Það er ekki hægt að sjá hversu mikla erfiðleika hún hefur gengið í gegn um á þessari mynd. MYND/EA
María Baldursdóttir, ekkja Rúnars Júlíussonar, hefur glímt við alvarleg veikindi undanfarið. Hún fékk heilablóðfall fyrir þremur árum og hefur verið í strangri endurhæfingu. María ætlar engu að síður að syngja eitt lag á minningartónleikum um Rúnar í kvöld.

María segist hafa fylgst vel með undirbúningi tónleikanna en synir hennar, Baldur og Júlíus, hafa borið hitann og þungann af þeim. „Það verður gaman að vera með allri fjölskyldunni í kvöld. Við vorum með tónleika fyrr á árinu sem voru alveg frábærlega vel heppnaðir,“ segir María. „Júlli, sonur minn, verður á trommunum en hann er besti trommuleikari landsins en það er auðvitað að mínu mati,“ segir stolt móðirin.





María og Rúnar, daginn sem hún var kosin fegurðardrottning Íslands. „Ég sá þessa mynd í fyrsta skipti um daginn þegar hún var sett inn á Facebook-síðuna mína og mér finnst hún ægilega sæt,“ segir María.MYND/EINKASAFN
Hinn ástsæli rokkari Rúnar Júl lést fyrir aldur fram árið 2008, aðeins 63 ára. Það var Maríu eðlilega mjög þungbært. Hún segist sakna hans á hverjum degi. María átti þó ekki von á því að veikjast alvarlega og glíma við erfiðan sjúkdóm í kjölfarið.

„Ég hef aldrei verið fyrir að fara til lækna. Var trúlega með of háan blóðþrýsting og fann stundum fyrir jafnvægisleysi. Mér datt samt ekki í hug að eitthvað svona kæmi fyrir mig,“ segir hún.

„Alltaf blindfull“

María var þreytt og slöpp einn daginn, lagðist upp í sófa til að hvíla sig þegar blóðtappi skaust upp í heila. Hún var lengi á sjúkrahúsi, síðan í hvíld og endurhæfingu í Hveragerði og á Reykjalundi. Þótt endurhæfingin gangi hægt vonast hún til að ná sér enn betur með tímanum. María á erfitt með mál og er enn völt á fótunum vegna jafnvægistruflana. „Ég hef heyrt fólk hneykslast á því að ég sé alltaf blindfull. Það hefur þá eitthvað til að tala um,“ segir hún og hlær, enda hefur María alltaf verið létt í skapi.



María fyrir miðju ásamt öðrum þátttakendum í Fegurðarsamkeppni Íslands árið 1969.MYND/EINKASAFN
„Það er mjög margt sem ég get ekki gert og ég er dettin. Ég þekki til dæmis ekki mína eigin skrift. Allar fínhreyfingar eru erfiðar. En með reglubundinni sjúkraþjálfun finn ég að ég styrkist smátt og smátt. Það er mikið áfall að veikjast snögglega og lífið breytist mikið.

Ég þakka þó fyrir að ekki fór verr. Sumir fara ekki á fætur aftur eftir heilablóðfall. Maður verður að vera vongóður og ég hef aldrei gefist upp. Þetta hefur vissulega verið erfiður tími en maður verður að halda áfram.“

María segist vera með göngugrind sem veiti henni stuðning. Henni finnst þó óþægilegt að ganga með hana utandyra. „Ætli það sé ekki pjatt,“ segir hún og bætir við að það sé ekkert mál fyrir sig að vera með hana utanhúss í útlöndum þar sem enginn þekkir hana. María er einmitt að undirbúa sig fyrir ferð til Tenerife þar sem hún ætlar að njóta lífsins í sól og hita.

María í safni Rúna Júl á Skólaveginum. Bjartsýn og jákvæð.
Flutt á hjúkrunarheimili

María og Rúnar byggðu sér reisulegt einbýlishús við Skólaveg í Keflavík þegar þau voru um tvítugt. Þar rak hún hárgreiðslustofu á yngri árum og hann hljóðver. Húsið var því bæði heimili og vinnustaður. Eftir að María veiktist voru tröppurnar í húsinu orðnar henni erfiðar auk þess sem hún þurfti umönnun og öryggi. Nýlega seldi hún syni sínum, Júlíusi, húsið og flutti á hjúkrunarheimilið Nesvelli sem Hrafnista rekur í Reykjanesbæ.

Þar hefur hún litla íbúð til afnota en getur jafnframt fengið þá þjónustu sem hún þarf. María er 68 ára og talsvert yngri en flestir aðrir íbúar hússins. Hún segist kunna ágætlega við sig á nýja staðnum og sé að venjast umhverfinu. „Ég er með gríðarlega fallegt útsýni úr stofunni minni,“ segir hún. María viðurkennir að vissulega sé skrítið að vera flutt á nýjan stað eftir að hafa búið í sama húsinu nánast alla ævi. „En ég hef góða aðlögunarhæfni.“

Hljóðver Geimsteins og Rokkheimur Rúna Júl eru þó enn í gamla húsinu. Hægt er að panta aðgang og leiðsögn um safnið. Maríu finnst frábært að það haldist áfram í fjölskyldunni. „Það fór hver einasta króna sem við unnum okkur inn í þetta hús á sínum tíma,“ segir hún. „Við vorum þó alltaf nægjusöm.“

Rúnar og María voru eitt flottasta par landsins.
Bjartsýn og jákvæð

„Ég reyni að vera jákvæð og bjartsýn. Maður þarf að sætta sig við orðinn hlut og líta á veikindin sem verkefni sem þarf að leysa. Hér hef ég þá þjónustu sem ég þarf á að halda. Ég legg bara áherslu á að ná meiri styrk,“ segir María sem var fegurðardrottning Íslands árið 1969 auk þess að vera kærasta aðalrokkstjörnu landsins og fótboltahetju.

María var aðeins sautján ára þegar hún eignaðist Baldur árið 1964 og var því orðin móðir þegar hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni. Baldur hefur getið sér gott orð sem keppandi í Útsvari fyrir Reykjanesbæ. María var einnig þekkt söngkona á árum áður og systir Þóris Baldurssonar tónlistarmanns. María á sex barnabörn og tvö langömmubörn. „Yndislegur hópur sem ætlar að mæta á tónleikana í Háskólabíói kvöld. Gestasöngvarar verða Valdimar, Eyþór Ingi, Salka Sól og Magni og ég hlakka mikið til kvöldsins,“ segir hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×