Myndum við samþykkja að börnin okkar stæðu úti á götu á spjalli við ókunna manneskju í klukkustund eða meir? Einmitt það gætu börnin okkar verið að gera í tölvunni. Spjalla við fullorðið fólk, sem þau þekkja ekki, langtímum saman. Kynferðisbrotum tengdum Netinu hefur fjölgað síðustu misseri. Fullorðnir karlmenn sem leita eftir kynlífi með ungum krökkum þurfa ekki langan tíma á Netinu - til að finna næsta fórnarlamb.
Í þessum þætti birtum við myndir af fjórum fullorðnum karlmönnum sem heimsóttu, að þeir héldu, þrettán ára stúlku í litla kjallaraíbúð í Reykjavík. Við þekkjum ekki forsögu mannanna. Það eina sem við vitum, er, að þeir vildu hitta ólögráða stúlku í kynferðislegum tilgangi. Öll samskiptin á undan heimsókninni sýna fram á það. Það voru miklu fleiri sem vildu spjalla við stúlkuna og hitta hana. Markmið okkar er ekki að gera mennnina þjóðþekkta, heldur, að sýna fram á hve vandamálið er stórt. Það er lögreglunnar, að rannsaka málin.
Ef þú veist um karlmenn sem reyna að lokka til sín börn og unglinga gegnum Netið eða með öðrum hætti, hafðu þá samband við kynferðisbrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins í síma 444-1000 . Það er líka hægt að fá beint samband við barnaverndarnefnd í neyðarsíma lögreglunnar, einn einn tveir, til að tilkynna kynferðisbrot. Við bendum á heimasíðu Kompáss á slóðinni www.visir.is/kompas, en þar er að finna upplýsingar um staði sem hægt er að leita til. Þar er líka hægt að lesa samskipti karlanna við tálbeitu Kompáss.
Og við endurtökum ... ef einhver er að hugsa um að hafa samband við börn á Netinu í kynferðislegum tilgangi, muniði, þetta gæti verið Kompás.
Efni ţessarar síđu er alfariđ á ábyrgđ ritstjóra Kompás.