Innlent

Á annað hundruð bíla sátu fastir á veginum um Sandskeið

Birgir Olgeirsson skrifar
Margir ökumenn lentu í vandræðum á veginum um Sandskeið vegna ófærðar.
Margir ökumenn lentu í vandræðum á veginum um Sandskeið vegna ófærðar. Vísir/Vilhelm
Mikið öngþveiti skapaðist á veginum um Sandskeið í dag vegna ófærðar og sátu þar á annað hundruð bíla fastir og margir langt fram eftir kvöldi. Ófært er um Hellisheiði og hefur ekkert tekist að sinna henni vegna vinnu við að greiða úr þeirri flækju sem myndaðist við Litlu kaffistofuna þegar bílar festust þar í ófærðinni.

Þrengslin eru þó fær samkvæmt vef Vegagerðarinnar, en þó er krapi og snjóþekja á veginum, en illa gekk að koma snjómoksturstækjum að veginum sökum öngþveitis á Sandskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×