Innlent

Á annað hundrað þúsund nutu veðurblíðunnar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá flugeldasýningunni í gærkvöld, tónlistarhúsið Hörpu má sjá neðst á myndinni.
Frá flugeldasýningunni í gærkvöld, tónlistarhúsið Hörpu má sjá neðst á myndinni. Höfuðborgarstofa
Talið er að á annað hundrað þúsund manns hafi komið saman í miðborg Reykjavíkur í gær til að sækja þá rúmlega 300 viðburði sem í boði voru á Menningarnótt.

Veðrið lék við gesti borgarinnar allan daginn, allt frá því að fyrstu hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka voru ræstir út um klukkan 08:40 og þangað til síðasta flugeldurinn sprakk í flugeldasýningunni sem markar lok hátíðarinnar.

Aðstandendur Menningarnætur segja að mannfjöldinn hafi dreift sér vel yfir miðborgina og að mikil þátttaka hafi verið í öllu viðburðahaldi. Hátíðarsvæðið hafi aftur verið stækkað í ár og náði það út á Granda, að Hlemmi og Klambratúni og út að Veröld-húsi Vigdísar.

Lögregla segir að aðsókn hafi verið afar jöfn og þétt frá hádegi og í allt kvöld. Þá hafi umferð gengið greiðlega frá miðborginni strax eftir flugeldasýninguna.

Hundruð lögðu hönd á plóg

Haft er eftir Ásthildi Bragadóttur, forstöðukonu Höfuðborgarstofu, í tikynningu að hún gæti ekki verið ánægðari með hátíðina.

„Mig langar fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Höfuðborgarstofu og stjórnar Menningarnætur að þakka öllum gestum hátíðarinnar, viðburðarhöldurum, rekstaraðilum, íbúum í miðborginni, lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, öryggisaðilum og Strætó innilega fyrir einstaklega vel heppnaða Menningarnótt. Mörg hundruð manns lögðu hönd á plóg til að gera hátíðina sem glæsilegasta og það tókst svo sannarlega,“ er haft eftir Ásthildi.

„Það var einstaklega góð stemning í miðborg Reykjavíkur þar sem allir lögðust á eitt við að gera daginn sem ánægjulegastan. Vel á annað hundrað þúsund manns naut þeirrar fjölbreyttu dagskrár sem var í boði, samgöngurnar gengu vel og allir voru sér og sínum til sóma. Ég hef heyrt í viðburðahöldurum. öryggisaðilum, rekstraraðilum og íbúum í borginni í dag og allir hafa lýst yfir mikilli ánægju með hvernig til tókst“ segir hún jafnframt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×