Innlent

Á annað hundrað manns fögnuðu með Guðna og Elizu í veislu á Bessastöðum

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Guðni og Eliza stíga úr forsetabílnum, komin á Austurvöll, og heilsa viðstöddum.
Guðni og Eliza stíga úr forsetabílnum, komin á Austurvöll, og heilsa viðstöddum. vísir/eyþór
Guðni Th. Jóhannesson, nýr forseti Íslands, var settur í embætti í Alþingishúsinu í gær. Hundruð mættu á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni en fyrri hluti hennar fór fram í Dómkirkjunni. Eftir messu fluttu gestir sig um set yfir í þingsalinn. Honum hafði verið breytt svo fleiri myndu rúmast innan salarins.

Á meðal gesta voru ráðherrar, þingmenn, borgarstjóri, biskup, forseti Hæstaréttar og fyrrverandi forsetarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Vigdís Finnbogadóttir. Þá voru allir formenn stjórnmálaflokka sem sæti eiga á þingi viðstaddir fyrir utan Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins.

Guðni og Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttarvísir/Eyþór
Mikil gleði ríkti á meðal þeirra sem komnir voru að fylgjast með. Sjá mátti íslenska fánann á lofti og enginn lét það trufla sig að ský hefðu dregið fyrir sólu eftir veðurblíðu undanfarinna daga.

Eftir formlega athöfn skrifaði Guðni undir kjörbréf sem Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, rétti honum. Því næst hélt hann út á svalir Alþingishússins og heilsaði viðstöddum. Að því loknu flutti hann innsetningarræðu sína í þingsal.

Guðni stiklaði á stóru í ræðu sinni og sagði meðal annars að sér væri efst í huga þakklæti fyrir það traust sem honum hefði verið sýnt að taka við embættinu.

Eliza horfir hlýlega til forsetans á svölum Alþingishússins. vísir/Eyþór
Hann sagði að forseti réði sjaldan úrslitum einn síns liðs en að hann teldi að hann eigi að standa utan sviðs stjórnmálanna. Hann eigi að vera óháður flokkum og fylkingum. Hann sagði hins vegar að hann myndi vekja máls á því sem honum byggi í brjósti, því sem vel væri gert en einnig því sem betur mætti fara.

Guðni sagði að Ísland væri gott og friðsælt land og þar nytum við góðs af því sem eldri kynslóðir hefðu gert. Hins vegar mætti margt fara betur. Fólk ætti ekki að líða skort, allir ættu að eiga aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og enn væri ekki í land komið í jafnréttisbaráttunni.

„Mér stendur nærri að nefna menntakerfið. Innan þess eiga allir að geta fundið sér farveg og nám við hæfi án þess að fjárhagur hamli för,“ sagði Guðni.

Guðni og Eliza koma bakdyramegin heim til Bessastaða í fyrsta skipti sem forsetahjón. vísir/Eyþór
Guðni minntist á það í ræðu sinni að kosið yrði til þings í haust. Í viðtali við Ríkisútvarpið sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra það ekki hafa komið sér á óvart, enda hafi þeir rætt kosningar sín á milli.

Að athöfninni lokinni bauð Guðni fjölda gesta til veislu á Bessastöðum, nýju heimili sínu. Starfsmaður forsetaembættisins sagði í samtali við Fréttablaðið að um 160 gestum hafi verið boðið, þó sé óvíst hversu margir hafi mætt. Á meðal gesta var fjölskylda Guðna sem og sjálfboðaliðar sem aðstoðuðu við framboð hans.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu

Guðni tekur á móti sínum fyrsta gesti sem forseti. vísir/Eyþór

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×