Erlent

Á annað hundrað fallinn á Gaza

Linda Blöndal skrifar
Á annað hundrað eru fallnir á Gaza í Palestínu vegna loftárása Ísraelsmanna, mest óbeyttir borgarar. Fátt bendir til þess að átökunum linni á næstunni.

Mörg börn fallin

Heilbrigðisstarfsmenn á Gaza segja að minnsta kosti 75 óbreyttir borgara hafi fallið í árástunum, þarf af 23 börn. Tólf manns féllu í gærdag og hátt á annan tug í nótt og í dag dóu tvær fatlaðar konur þegar skriðdreki skaut á deildina á endurhæfingardeild þar sem þær dvöldust.

Fjórir unglingar féllu og 15 særðust þegar flugskeyti Ísraela lenti við heimili í Jabalya flóttamannabúðunum í norðurhluta Gaza í morgun.

Segjast ná bækistöðvum hryðjuverkamanna

Ísraelski herinn hefur skotið á um eitt þúsund skotmörk á Gaza en enginn hefur fallið í Ísrael en nokkrir særst. Flaugar Hamas eru mun minni en þau fullkomnu flugskeyti sem Ísraelsher býr yfir.

Einnig var moska í miðborgini sprengd í tætlur en Ísraelsmenn segja að hryðjuverkamenn hafi haft aðsetur í henni. Talsmaður Ísraelshers segir að tekist hafi að eyða 10 bækistöðvum hryðjuverkamanna, þarf af sex sem hafi tekið beinan þátt í árásum á Ísrael undanfarna daga, ásamt 18 vopnaverksmiðjum en Hamas liðar hafi skotið um 700 eldflaugum á Ísrael að undanförnu.

Hóta landhernaði

Ísraelsk stjórnvöld hafa heimilað að 40 þúsund hermenn verði kallaðir út og hóta að gera innrás á landi til þess að brjóta Hamasliða á  bak aftur og þess sést merki við landamæri Gaza.

Íslendingar bera ábyrgð

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra sagði í yfirlýsingu í dag að ábyrgð Ísraela væri sérstaklega mikil í átökunum. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna sagði í fréttum Stöðvar tvö í kvöld að Ísland beri sérstaka ábyrgð eftir að Alþingi samþykkti sjálfstæði Palestínu í nóvember 2011, fyrst ríkja í Vestur og norður Evrópu. Íslensk stjórnvöld ættu að fordæma framgöngu Ísraels og finna mögulega leið til að koma að hjálparstarfi. Fylgja þurfi eftir samþykktinni frá því 2011.

Gaza ströndin spannar lítið svæði eða um 360 ferkílómetrar. Til samanburðar er Reykjavík 275 ferkílómetrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×