Innlent

Á að blása lífi í bæinn

Snærós Sindradóttir skrifar
Meira líf verður við útitaflið á Bernhöftstorfu gangi áætlanir borgarinnar eftir.
Meira líf verður við útitaflið á Bernhöftstorfu gangi áætlanir borgarinnar eftir. Fréttablaðið/Valli
Bernhöftstorfa við Lækjargötu hefur nú bæst í hóp þeirra svæða í miðborginni þar sem heimilt er að hafa torgsölu.

Salan er hugsuð fyrir einstaklinga en sækja þarf um þar til gert leyfi til að opna þar sölubás til allt að þriggja mánaða í senn. Aðstaðan kostar tuttugu þúsund krónur á mánuði.

Hægt verður að sækja um pláss á Bernhöftstorfu frá og með 15. maí næstkomandi en það er umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sem sér um útgáfu leyfanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×