Skoðun

A,B, C, D og framhaldsskólinn

Bryndís Jónsdóttir skrifar
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að verið er að gera umtalsverðar breytingar á námsmati og taka í notkun nýtt einkunnakerfi í bókstöfum sem notað verður í vor við útskrift úr 10. bekk grunnskóla. Sitt sýnist hverjum um þessar breytingar, margir eru jákvæðir og spenntir, aðrir áhyggjufullir og enn aðrir verulega ósáttir.  Staðan er sú að frá þessum breytingum verður ekki horfið, nemendur munu útskrifast úr grunnskólum landsins með einkunnir í bókstöfum. Staðan er líka sú að þrátt fyrir að talið sé að námsmat út frá hæfniviðmiðum muni leiða til meira samræmis í einkunnagjöf en áður þá verður þetta alls konar í vor, það verður ekki samræmi og það þarf að viðurkenna það. Á sama tíma og framhaldsskólarnir standa frammi fyrir því að velja milli nemenda út frá nýju námsmati og einkunnakerfi, sem enn er ekki fullmótað alls staðar, eru þeir flestir að takast á við það stóra verkefni að stytta námstímann í þrjú ár.

En hvernig tökumst við á við þessa stöðu?  Hvernig getum við útskýrt fyrir nemendum að þótt námsmatið sé alls konar muni þeir ekki gjalda þess og getum við verið þess fullviss að þannig verði það? Nemendur vita að það komast ekki allir inn í þá skóla sem þeir helst vilja en þeir eiga ekki að þurfa að kvíða því að þeir njóti ekki sanngirni þegar þeir sækja um í sínum draumaskóla.  Tölur undanfarinna ára sýna að allflestir grunnskólanemar fá inni í þeim skólum sem þeir setja í 1.  eða 2. sæti. Það er óskandi að þannig verði það einnig í haust en stóra viðfangsefnið er  að sjá til þess að nemendur upplifi að þeir hafi verið metnir á sanngjarnan og réttmætan hátt.

SAMFOK býður til opins fundar fimmtudaginn 31. mars kl. 19.30-22.00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Á fundinum munu þrír nemendur úr 10. bekk Laugalækjarskóla, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, aðstoðarskólameistari Kvennaskólans í Reykjavík og sérfræðingur á Menntamálastofnun flytja stutt erindi. Að því loknu verða pallborðsumræður og hafa fulltrúar allra framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu boðað þátttöku sína. Á fundinum gefst því einstakt tækifæri til að spyrja spurninganna sem brenna á nemendum og foreldrum þeirra, koma á framfæri ábendingum og einnig til að ræða í sameiningu hvaða leiðir er hægt að fara til þess að sem flestir geti sætt sig við niðurstöðurnar.  Við hvetjum nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra til að koma á fundinn og taka virkan þátt í umræðum.

Bryndís Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri SAMFOK



Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×