Innlent

879 innbrot fyrstu níu mánuði ársins

Atli Ísleifsson skrifar
Á landsbyggðinni voru flest innbrot í september.
Á landsbyggðinni voru flest innbrot í september. Vísir/Getty
Heildarfjöldi innbrota frá janúar til september 2014 var 879 sem eru 46 fleiri brot en á sama tíma í fyrra.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að á höfuðborgarsvæðinu hafi flest innbrot verið gerð í ágúst og voru þau talsvert fleiri en í öðrum mánuðum ársins. Alls voru þau 139 talsins sem eru jafn mörg innbrot og í apríl 2012 sem er það mesta sem verið hefur í einum mánuði síðustu þrjú árin.

Á landsbyggðinni voru flest innbrot í september. Flest áttu þau sér stað í umdæmi lögreglunnar á Selfossi en á sama tímabili í fyrra voru jafn mörg innbrot í umdæmi lögreglunnar á Selfossi og í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×