Skoðun

80.000 börn á Íslandi á flótta

Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar
Þegar ég kom heim frá Sýrlandi eftir þriggja mánaða dvöl sem ferðamaður hvatti ég alla til að heimsækja landið. Þar væri ótrúlega margt að sjá, sagan á hverju strái og gestrisnin einstök. Auðvitað var tjáningarfrelsi lítið sem ekkert. Öll andspyrna kæfð í fæðingu. En það Sýrland sem ég sá var samt friðsælt og fallegt land þar sem milljónir manna áttu líf eins og ég og þú.

Síðan kom arabíska vorið og forsetinn mætti mótmælendum með gríðarlegri hörku. Átök brutust út sem urðu að blóðugu stríði. Afleiðingarnar eru skelfilegar: Nærri tólf milljónir manna hafa endað á flótta – meira en hálf sýrlenska þjóðin. Ég skrifa þetta aftur því þetta er svo ótrúlegt: Helmingur landsmanna hefur flúið að heiman. Þetta er eins og ef tæplega 165.000 Íslendingar væru á flótta. Af þeim væru rúmlega 80.000 börn.

Skrýtinn heimur

Ég viðurkenni fúslega að ég hef oft grátið yfir skelfingunni í Sýrlandi. Yfir eigin vanmætti. Af hverju er þetta bilaða stríð enn í gangi? Og hvernig má vera að Evrópa loki landamærum sínum svona kirfilega fyrir flóttafólki? Ekki bara frá Sýrlandi, heldur flóttafólki almennt. Hvaða fáránlega heimi búum við í þar sem drukknuð börn mara í hálfu kafi undan ströndum ríkja sem vilja ekki vita af þeim?

Ég viðurkenni líka að mitt í vanmættinum hef ég oft verið þakklát fyrir að verða þó vitni að einum umfangsmestu neyðaraðgerðum sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur nokkru sinni ráðist í. Þær eiga sér stað núna í Sýrlandi og öllum nágrannaríkjunum. Ég fylltist líka þakklæti þegar ég sá í gær og um helgina hversu margir voru tilbúnir að leggja fram sína hjálp svo hingað mættu koma fleiri flóttamenn en ella.

Það er nefnilega hægt að gera svo margt. Sumt er flókið, annað sáraeinfalt. Með því að senda sms-ið UNICEF í númerið 1900 gefur þú 1.900 krónur sem fara í að hjálpa börnum frá Sýrlandi í sárri neyð.

Enginn getur gert allt en allir geta gert eitthvað.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×