Innlent

80 prósent kvenna upplifa sig óöruggar í miðborginni

Stefán Árni Pálsson skrifar
UN Women á Íslandi ýtir úr vör herferð til að skapa konum og börnum öruggt líf.
UN Women á Íslandi ýtir úr vör herferð til að skapa konum og börnum öruggt líf. vísir/hari
Átta af hverjum tíu íslenskum konum upplifa sig óöruggar í miðborg Reykjavíkur að næturlagi en þetta kemur fram í tilkynningu frá UN Women á Ísland.

Þar segir að nauðsynlegt sé að auka öryggi kvenna út um allan heim og Reykjavík sé enginn undantekning.

UN Women á Íslandi ýtir úr vör herferð til að skapa konum og börnum öruggt líf án ótta við ofbeldi.

„Ofbeldi gegn konum og stúlkum er heimsfaraldur. Óhætt er að segja að það ríki neyðarástand í stórborgum víðsvegar um heiminn þar sem konur og stúlkur eiga erfitt með að ferðast til og frá vinnu eða sækja skóla vegna ótta við ofbeldi og áreitni í almenningsrýmum. Meira að segja í öruggustu borgum heims eins og Reykjavík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women.

Öruggar borgir (e. Safe Cities Global Initiative) er alþjóðlegt verkefni UN Women. Borgaryfirvöld 18 landa hafa heitið því að gera borgina sína öruggari fyrir alla.

„Markmið Öruggra borga er að skapa konum, unglingum og börnum öruggt líf í borgum án ótta við ofbeldi og er það unnið í samstarfi við borgaryfirvöld og frjáls félagasamtök á hverjum stað,“ segir hún. „Sem dæmi um ástandið má nefna að 95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti.“

Reykjavíkurborg lætur sitt ekki eftir liggja og skrifar í næstu viku undir samning um að höfuðborgin verði örugg borg.

Síminn hefur í samstarfi við samtökin fengið framleiðslufyrirtækið Tjarnargötuna til að framleiða þrjú gagnvirk myndbönd sem sýna íslenskan veruleika kvenna sem verða fyrir áreitni í ólíkum aðstæðum. Áhorfendur skyggnast inn í heim bæði þolenda kynferðisofbeldis og gerenda slíks ofbeldis með því að tengja saman tölvu og síma.

„Ofbeldi gegn konum er alþjóðlegt vandamál og viðgengst í öllum samfélögum. Með þessu átaki tökum við hjá Símanum höndum saman við UN Women við að vekja athygli á því að þetta er samfélagslegt mein hér á Íslandi, ekki síður en annars staðar. Afraksturinn rennur svo þangað sem hans er mest þörf,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans.

Inga Dóra segir það von UN Women að myndböndin veki fólk til vitundnar um að ofbeldi þrífst í hverri einustu borg í heiminum, líka okkar. „Samtökin hvetja landsmenn til þess að senda sms-ið oruggborg í 1900 og leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir betri heimi fyrir alla.“

Rannsóknir sýna að 99,3 prósent kvenna og stúlkna á þéttbýlissvæðum í Egyptalandi hafa upplifað kynferðislega áreitni og um helmingur þeirra verður fyrir áreitni daglega. 95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti.

73 prósent þessara kvenna upplifa ekki einu sinni öryggi í sínu nánasta umhverfi. Þrír af hverjum fjórum karlmönnum í sömu rannsókn telja að konur beri sjálfar sök á að verða fyrir ofbeldi með því að vera í tilteknum klæðnaði.

Tveir af hverjum fimm karlmönnum í Nýju Delí telja að konur sem eru á ferli eftir myrkur beri sjálfar ábyrgð á því að vera áreittar. Um 77 prósent íslenskra kvenna upplifa sig óöruggar í miðborg Reykjavíkur að næturlagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×