Erlent

75 vígamenn féllu í loftárás Frakka

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Afleiðingar einnar loftárásarinnar.
Afleiðingar einnar loftárásarinnar.
Loftárásir Frakka, sem hófust á föstudag, felldu stóran hóp skæruliða úr röðum Íslamska ríkisins vestan borgarinnar Mosul í Írak.

Heimildamaður íraska ríkissjónvarpsins telur að allt að 75 vígamenn hafi fallið í árásum dagsins sem beint var gegn birgðageymslum samtakana. Íslamska ríkið er nú talið flytja vopnabúr sín með reglulegu millibili til að gera geymslurnar að erfiðari skotmörkum.

Árásir Frakka hófust á föstudag og Rafale-orrustuvélar Frakklandshers hafa varpað fjölda sprengja á valin skotmörk í Írak síðastliðinn sólarhring. Francois Hollande, forseti Frakklands, sagði í ávarpi á fimmtudag að Frakkland myndi einungis gera árásir gegn IS í Írak, en ekki í Sýrlandi. Þá þvertók hann fyrir að hermenn yrðu sendir til bardaga.

Bandaríkin hafa gert yfir 170 loftárásir í Írak frá því um miðjan ágústmánuð og hafa þær gert Kúrdum og íraska hernum kleyft að ná Mosul-stíflunni og nokkrum bæjum úr höndum IS.


Tengdar fréttir

Boðað til mótmæla gegn IS í Danmörku

Boðað hefur verið til mótmæla gegn Íslamska ríkinu í Kaupmannahöfn og Árósum í dag og er búist við að hundruð múslimar taki þátt í þeim. Vel á annað þúsund hafa boðað komu sína á mótmælin í Kaupmannahöfn í gegnum Facebook.

„Við elskum að drekka blóð“

Fullyrðingar vígamanns um að liðsmenn Íslamska ríkisins neyti blóðs fórnarlamba sinna hafa vakið mikinn óhug.

Um 70 þúsund flúið til Tyrklands í dag

Sýrlenskir Kúrdar flykkjast nú yfir landamærin af ótta við árásir Íslamska ríkisins. Ákvörðun Tyrkja um að hleypa þúsundum Kúrda inn fyrir landamæri sín er talin til marks um hversu alvarleg ógn stafar af vígamönnum samtakanna.

Gerðu loftárásir á vígamenn í Írak

Bandaríkjamenn hafa síðustu tvo daga gert harðar loftárásir á bækistöðvar Hins íslamska ríkis í Írak nálægt Sinjar fjalli suðvestur af höfuðborginni Bagdad. Þetta eru fyrstu árásirnar sem gerðar eru eftir að Obama forseti lýsti því yfir að gefa þyrfti í í baráttunni við vígamennina sem nú ráða stórum svæðum í Írak og í Sýrlandi.

Þriðji Vesturlandabúinn tekinn af lífi

"Þeir eru engir múslimar, þeir eru skrímsli,“ sagði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, um liðsmenn Íslamska ríkisins sem í gær birtu myndband sem sagt var sýna afhöfðun bresks hjálparstarfsmanns, David Haines að nafni.

Funda í París um ástandið í Írak og Sýrlandi

Johnn Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta kollega sína frá fjölda ríkja á fundi í París sem ætlað er að afla baráttunni við Hið íslamska ríki í Írak og í Sýrlandi fylgis.

Frakkar gera loftárásir í Írak

Stjórnvöld í Frakklandi ætla að verða við beiðni Íraka um aðstoð í baráttunni við Íslamska ríkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×