Innlent

75 ár í dag frá fæðingu John Lennon

Heimir Már Pétursson skrifar
John Lennon stofnandi The Beatles hefði orðið 75 ára í dag hefði hann lifað. Yoko Ono ekkja hans er komin til Reykjavíkur til að minnast hans og tendrar friðarsúluna í Viðey í kvöld. Tveggja daga ráðstefna um stríðið gegn fíkniefnum hefst í dag sem haldin er Lennon til heiðurs.

John Lennon fæddist í Liverpool í Bretlandi hinn 9. október árið 1940, fimm árum áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk. Hann var alinn upp af móðursystur sinni, átti lítið sem ekkert samband við föður sinn en móðir hans dó í bílslysi þegar hann var unglingur.

Lennon stofnaði The Beatles fljótlega eftir að hann kynntist Paul McCartney og síðar George Harrison en Ringo Starr kom til liðs við hljómsveitina um það bil sem fyrsta hljómplata Bítlanna var tekin upp árið 1963. Engin hljómsveit í heiminum hefur náð öðrum eins vinsældum og seljast plötur hennar enn í dag eins og heitar lummur. En þrátt fyrir miklar vinsældir og útgáfu starfaði hljómsveitin aðeins í átta ár og hætti endanlega árið 1970 þegar Paul McCartney krafist formlegara slita fyrir dómi.

Lennon kynntist seinni konu sinni listamanninum Yoko Ono árið 1965 og fljótlega eftir að Bítlarnir hættu fluttu þau til New York, heimaborgar Yoko, árið 1971. Lennon átti aldrei afturkvæmt til Bretlands og var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York hinn 9. desember 1980, þegar hann og Yoko voru að koma heim frá vinnu sinni í hljóðveri og voru nýbúin að gefa út plötuna Double Fantasy, fyrstu hljómplötu Lennons í fimm ár. Árið 2007 reisti Yoko friðarsúluna í Viðey í samstarfi við Reykjavíkurborg sem hún tendrar árlega á afmælisdegi hans og er hún látin loga fram að dánardegi hans ár hvert.

Yoko er komin til Reykjavíkur og býður fríar ferjuferðir frá Skarfabakka frá klukkan 17:30 til 19:20 í dag út í Viðey þar sem hún mun minnast 75 ára fæðingarafmælis Lennons. Þar verður einnig opnuð kermik sýning á verkum Kyoko dóttur hennar af fyrra hjónabandi.

Snarrótin, samtök um borgaraleg réttindi gengst fyrir tveggja daga ráðstefnu undir titlinum Imagine Peace in the Drug War sem hefst í Tjarnarbíói klukkan 15 og er haldin Lennon til heiðurs. Ráðstefnan er öllum opin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×