Enski boltinn

72 dagar er langur tími | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stuðningsmenn Aston Villa.
Stuðningsmenn Aston Villa. Vísir/Getty
Aston Villa tekur á móti Southampton á Villa Park í kvöld í lokaumferð tólftu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Gengi liðanna hefur verið afar ólíkt, Southampton hefur unnið 11 af síðustu 12 leikjum sínum og er mjög óvænt í 2. sæti deildarinnar en á sama tíma hefur Aston Villa ekki fagnað sigri í heila 72 daga.

Aston Villa vann sinn síðasta sigur á móti Liverpool 13. september síðastliðinn en Southampton hefur unnið sex deildarleiki á þessum 72 dögum.

Enska úrvalsdeildin hefur tekið saman stutt kynningarmyndband fyrir leik kvöldsins og það má finna hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×