Erlent

700 þúsund fengu hæli í ESB

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Meirihluti flóttamannanna kemur frá Sýrlandi.
Meirihluti flóttamannanna kemur frá Sýrlandi. NORDICPHOTOS/GETTY
Rúmlega 700 þúsund einstaklingar fengu hæli í einhverju aðildarríkja Evrópusambandsins, ESB, í fyrra. Nær 60 prósent hælisleitendanna komu frá Sýrlandi. Þjóðverjar tóku á móti flestum þeirra sem sóttu um hæli eða 70 prósentum.

Svíar tóku á móti næstflestum en þar fengu rúmlega 69 þúsund einstaklingar hæli í fyrra.

Alls fékk 61 prósent umsækjenda hæli innan Evrópusambandsins í fyrra. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×