Erlent

70 látnir í tveimur árásum í úthverfi Bagdad

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Bagdad í dag.
Frá Bagdad í dag. Vísir/EPA
Tala látinna í árásunum í Írak í dag er komin upp í 70. Fólkið lét lífið í tveimur sjálfsmorðsárásum í úthverfi Bagdad í Írak. Árásirnar voru gerðar af vígamönnum Íslamska ríkisins, sem óku mótorhjólum inn í þvögur manna á markaði í bænum Sadr. Vígamenn ISIS réðust á úthverfið Abu Ghraib í dag.

Sautján úr öryggissveitum Írak féllu í átökunum.

Íraski herinn hefur sótt fram gegn ISIS víða í Írak og undirbýr nú árás á borgina Mosul, sem hefur verið í haldi vígamanna í tæp tvö ár. Samtökin gera þó reglulega árásir víða um Írak.

Haider al-Abadi, forsætisráðherra Írak, segir árásirnar sýna að ISIS séu á hælunum. Þeir geti ekki lengur ráðist á hermenn og því ráðist þeir á óbreytta borgara. Samkvæmt Reuters fréttaveitunni er enn barist í Abu Ghraib.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×