Erlent

69 blaðamenn létu lífið við störf á árinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Tólf manns létu lífið í árásinni á Charlie Hebdo og þar af átta, sem skilgreindir eru sem blaða- eða fréttamenn.
Tólf manns létu lífið í árásinni á Charlie Hebdo og þar af átta, sem skilgreindir eru sem blaða- eða fréttamenn. Vísir/EPA
Alls hafa 69 blaða- og fréttamenn látið lífið við störf sín á árinu. Af þeim voru 28 myrtir af vígahópum eins og Íslamska ríkinu og al-Qaeda og var Sýrland hættulegasta landið fyrir blaðamenn. Alls dóu 13 blaðamenn í Sýrlandi, sem er þó lægra en á fyrri árum borgarastyrjaldarinnar þar í landi.

Þetta kemur fram í samantekt samtakanna Committee to Protect Journalists. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að blaðamenn sem starfi á svæðum þar sem íslamistar séu virkir séu greinilega í meiri hættu en aðrir. Erfitt sé að halda utan um dauðsföll á slíkum svæðum og þá sérstaklega í Írak. Samtökin segjast hafa fengið fregnir af morðum á tugum blaðamanna í Írak, sem ekki var hægt að sannreyna þar sem þau eiga að hafa átt sér stað á yfirráðasvæði ISIS.

Samtökin Blaðamenn án landamæra segja að 67 blaðamenn hafi látið lífið við störf sín, en þeir gáfu einnig út skýrslu í dag. Þeir segja að alls hafi 110 blaðamenn látið lífið á árinu.

Frakkland er í öðru sæti hjá CPJ yfir þau lönd sem reyndust blaðamönnum hættulegust og er það vegna árásarinnar á skrifstofu Charlie Hebdo í janúar. Þá myrtu vígamenn al-Qaeda átta starfsmenn tímaritsins sem teljast sem blaðamenn en alls létust tólf í árásinni.

Sjá einnig: Tólf látnir í árás á skrifstofur tímarits í París

Þá eru þau Alison Parker og Adam Ward einnig á meðal þeirra 69, en þau voru skotin til bana í beinni útsendingu í Virginíu í ágúst.

Sjá einnig: Tveir í sjónvarpsteymi skotnir til bana í beinni útsendingu

Þá hafa rithöfundar og útgefendur í Bangladess verið skotmörk öfgamanna á árinu. Fjórir rithöfundar og útgefandi voru myrtir með sveðjum á árinu og fleiri særðir.

Frá því að CPJ hóf að halda utan um morð á blaðamönnum árið 1992, hafa 1175 blaðamenn látið lífið vegna starfa sinna. Langflestir þeirra fjalla um stjórnmál og hernað. Flestir hafa látið lífið í Írak eða 171, 92 í Sýrlandi, 77 í Filippseyjum, 60 í Alsír, 59 í Sómalíu, 57 í Pakistan, 56 í Rússlandi, 47 í Kólumbíu og 37 í Indlandi og Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×