Körfubolti

68 prósent stiga Keflavíkur skoruð af stelpum sem eru 18 ára eða yngri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emelía Ósk Gunnarsdóttir er stigahæsti leikmaður Keflavíkurliðsins en hún er aðeins 18 ára gömul.
Emelía Ósk Gunnarsdóttir er stigahæsti leikmaður Keflavíkurliðsins en hún er aðeins 18 ára gömul. Vísir/Stefán
Þær eru vissulega ungar en þær hafa líka sýnt það að þær eru orðnar mjög góðar. Hið unga lið Keflavíkur í Domino´s deild kvenna í körfubolta hefur staðið sig miklu betur í upphafi tímabilsins en flestir bjuggust við. Fjallað var um Keflavíkurliðið í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

Liðið hefur misst hvern reynsluboltann á fætur öðrum á síðustu árum og samkvæmt spánni fyrir mót þá átti þetta tímabil bara að fara í kynslóðarskipti.

Nú eftir fimm umferðir þá sitja Keflavíkurstelpurnar hinsvegar á toppi deildarinnar en liðið hefur unnið fjóra leiki í röð.   

Bandarísku leikmenn hinna liðanna sjö eru allar stigahæstar í sínum liðum en Dominique Hudson hjá Keflavík er aðeins í 3. sæti í Keflavíkurliðinu. Hún er einu bandaríski leikmaður deildarinnar sem hefur skorað minna en tuttugu stig í leik sem sýnir enn frekar hversu vel ungu stelpur Keflavíkurliðsins eru að spila.

Fimm af sjö stigahæstu leikmönnum Keflavíkurliðsins eru fæddar 1998 eða síðar og leikmenn 18 ára og yngri hafa skorað 68 prósent stiga Keflavíkurliðsins í vetur.

Það er athyglisvert að bera þær tölur saman við leikmenn annarra liða eins og sést í þessari töflu hér fyrir neðan. Það er eitt að leyfa ungu stelpunum að spila en þeim mun merkilegra að þær séu að skila sínu félagi upp að hlið Íslandsmeistara Snæfells á toppi deildarinnar. Það er hægt að sjá innslagið um Keflavíkurstelpurnar í spilaranum hér fyrir ofan.

Sjötta umferð Domino´s deildar kvenna fer fram annað kvöld en þá fá Keflavíkurstelpurnar Valsliðið í heimsókn.

Stig leikmanna liða Domino´s deildar kvenna sem eru 18 ára og yngri

Keflavík 253 stig

Valur 100 stig

Haukar 97 stig

Grindavík 48 stig

Stjarnan 36 stig

Njarðvík 31 stig

Snæfell 8 stig

Skallagrímur 0 stig

Hlutfall stiga liðanna skoruð af leikmönnum 18 ára og yngri

Keflavík 68 prósent

Haukar 34 prósent

Valur 28 prósent

Grindavík 14 prósent

Stjarnan 10 prósent

Njarðvík 8 prósent

Snæfell 2 prósent

Skallagrímur 0 prósent

Stigahæstu leikmenn Keflavíkurliðsins í vetur

Emelía Ósk Gunnarsdóttir (18 ára)          89 stig

Birna Valgerður Benónýsdóttir (16 ára)  63 stig

Dominique Hudson (26 ára)                       55 stig

Thelma Dís Ágústsdóttir (18 ára)              41 stig

Erna Hákonardóttir (23 ára)                        31 stig

Katla Rún Garðarsdóttir (17 ára)               25 stig

Þóranna Kika Hodge-Carr (17 ára)           23 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×